Miklaborg kynnir: Nýlegt og stórglæsilegt 440 fm einbýlishús á einstökum útsýnisstað í Kópavogi. Húsið stendur á einstakri lóð innst í botnlanga við stórt opið grænt svæði ofan við golfvöll GKG. Afstaða hússins er góð, innra skipulag frábært og hönnun falleg. Engu hefur verið til sparað við efnisval. Húsið er einangrað að utan og klætt og því viðhaldslétt.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason, sími: 822 2307, netfang: olafur@miklaborg.is.
NÁNARI LÝSING: Gengið er inn á efri hæðina í rúmgott anddyri með skápum. Eldhús er með fallegri hvítlakkaðri innréttingu, eldunareyju og stein á borðum. Eldhús er sérlega rúmgott og er opið inn í stórar stofur. Gasarinn í stofu. Gólfsíðir gluggar með óheftu útsýni til vesturs, norðurs og austurs. Rúmgóðar og bjartar stofur. Baðherbergi á efri hæð er með sturtu, rúmgott þvottahús á hæðinni og gott auka svefnherbergi. Vinnukrókur er einnig á hæðinni. Sérlega rúmgóður tvöfaldur bílskúr sem er innangengt í gegnum þvottahús. Gengið er niður steinsteyptan stiga á neðri hæðina niður í hol. Stórt sjónvarpsherbergi og innan við það er "hobby" herbergi með vínkjallara. Hluti af því rými er ekki skráð inn í birta fermetra og er húsið því stærra en skráning segir. Tvö mjög góð svefnherbergi. Hjónasvítan er með stóru baðherbergi með baðkari og "walk in" sturtu, fataherbergi og góðu svefnherbergi. Útgengt er frá baðherberginu út í yfirbyggðan heitan pott og gufu.
Stórt steypt plan er fyrir utan húsið og meðfram húsinu allan hringinn. Hiti er í planinu sunnan megin við húsið.
EIGN Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI SEM VANDAÐ HEFUR VERIÐ TIL ALLRA VERKA.
Húsið er skráð í fasteignaskrá tæplega 400 fm en neðri hæð er töluvert stærri en skráning segir til um þar sem óutgrafið rými var nýtt tll að stækka vinnuherbergi og geymslur.
Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 05/11/2019 | 125.800.000 kr. | 185.000.000 kr. | 395.8 m2 | 467.407 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
230 | 304,3 | 149 | ||
112 | 183 | 148 | ||
230 | 183,5 | 101,6 | ||
230 | 219,7 | 115,9 | ||
111 | 188,2 | 132,5 | ||
230 | 202,5 | 115,8 |