DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2026

Kinnargata 47

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
140 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
Verð
142.000.000 kr.
Fermetraverð
1.014.286 kr./m2
Fasteignamat
108.550.000 kr.
Brunabótamat
93.610.000 kr.
Byggt 2023
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Bílastæði
Fasteignanúmer
2520119
Landnúmer
228357
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Frá 2023
Raflagnir
Frá 2023
Frárennslislagnir
Frá 2023
Gluggar / Gler
Frá 2023
Þak
Frá 2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Fyrirhugaðar framkvæmdir
so
LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsilega 140 fm, 4ra-5 herbergja íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi með aukinni lofthæð, tvennum svölum og frábæru útsýni. Eigninni fylgir stæði í lokuðu bílastæðahúsi í mjög vönduðu og fallegu fjölbýli á besta stað í Urriðaholtinu Garðabæ. 

Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali,  S:820-9322, pall@fastlind.is.


Nánari lýsing: Aukin lofthæð er í allri eigninni, en loft í alrými og stofu er skáhallandi með enn meiri lofthæð.
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, mjög gott skápa- og borðpláss ásamt stórri eldunareyju, innréttingin er frá Voke III, framhliðar eru matt gráar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá Electrolux, háfur frá Elica og stórt spanelluborð frá AEG. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. 
Alrými: Parket á gólfi, opið og bjart rými, útgengt út á tvennar svalir til austurs og suðurs, morgun sólin í Austri og sólríkar suðursvalir með glæsilegu útsýni yfir golfvöllinn Odd, Setbergið, til sjávar og Snæfellsjökuls. 
Sjónvarpshol/herbergi: Möguleiki á fjórða svefnherberginu, tenglar rétt staðsettir. 11,3 fm.
Hjónaherbergi: 13,6 fm, parket á gólfi ásamt 4,4 fm fataherbergi.
Herbergi:  10,7 fm, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi: 9,7 fm, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x60 að stærð á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta, sturtutæki eru hitastýrð og innbyggð. Innréttingin er frá Voke III, framhliðar matt gráar að lit, borðplata er sérsmíðuð úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski.
Þvottahús: Innaf baðherbergi, rennihurð á milli rýma, innrétting undir þvottavél og þurrkara framleidd af Voke III grá að lit.

Svalir: Tvennar svalir,  3,8 fm og 8,3 fm.
Geymsla: 6,9 fm í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði: Í lokuðu bílastæðahúsi.

Kinnargata 47 er 13 íbúða fjölbýli á fjórum hæðum með aðalinngangi á 1. hæð og auka inngangi baka til á 2.hæð ásamt lokuðu bílastæðahúsi. Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.
Aðalhönnuður hússins: Arkís arkitektar ehf.


Burðakerfi hússins er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með vönduðum álklæðningum frá Áltak einnig er 1 hæð og hluti 2 - 4 hæðar með steinplötum frá Cosentino sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Gluggar eru úr ál/tré kerfi frá Velfag og glerjaðir með einangrunargleri.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/03/202382.750.000 kr.104.900.000 kr.140 m2749.285 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2023
Fasteignanúmer
2520119
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.510.000 kr.
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 50
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:09. nóv. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Naustavör 50
Naustavör 50
200 Kópavogur
139 m2
Fjölbýlishús
413
1151 þ.kr./m2
160.000.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 54
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíðarvegur 54
Hlíðarvegur 54
260 Reykjanesbær
145,2 m2
Raðhús
514
585 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 93
Skoða eignina Suðurgata 93
Suðurgata 93
300 Akranes
153,9 m2
Fjölbýlishús
523
584 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:07. nóv. kl 14:00-15:00
Skoða eignina Hnjúkamói 9
Hnjúkamói 9
815 Þorlákshöfn
137,4 m2
Fjölbýlishús
423
800 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin