Gunnar Valsson kynnir: Glæsilega, mikið endurnýjaða og vel skiplagða 5 herbergja íbúð á 3.hæð (efstu) við Hraunbæ 24 í Árbænum. Útleiguherbergi er í kjallara og er þar salernis og sturtu aðstaða. Árið 2021 var parket, hurðir, skápar og eldhús endurnýjað. Skipt var nýlega um járn og einangrun á þaki.Nánari lýsing:Forstofan er parketlögð og með fataskápum.
Stór
samliggjandi stofa og borðstofa, parket á gólfi, útgengt á suður-svalir.
Eldhúsið er parketlagt, falleg innrétting með góðu skápaplássi og borðkrók
Barnaherbergi, parket á gólfi, skápur.
Barnaherbergi, parket á gólfi.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, góðir skápar, útgengt á svalir til norð-austurs.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuhengi, innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í sameign er
útleiguherbergi, þar er salerni og sturtuaðstaða.
Sérgeymsla er í kjallara ásamt vagna og hjólageymslu.
Sérmerkt
bílastæði á lóð.
Verið er að setja rafhleðslustæði við húsið.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR GUNNAR VALSSON Í SÍMA 699-3702 / GUNNAR@FASTLIND.IS