Domusnova Akranesi og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Leynisbraut 19 á Akranesi.
Fallegt 135,5 m parhús byggt úr timbri á steyptri plötu, með 3 svefnherbergjum, þar af 32,8 fm sambyggðum bílskúr. Húsið er staðsett í rólegri botnlangagötu skammt frá m.a golfvelli og vinsælum gönguleiðum.
Hellulögð stétt að aðalinngangi og á bílaplani.
Góð forstofa, skápar, flísar á gólfi, gólfhitalögn.
Eldhús með hvítriinnréttingu, flísalagt gólf og á milli skápa. Endurn. tæki.
Gengið út á fallegan sólpall úr stofu.
3 svefnherbergi, gott skápapláss í hjónaherbergi, (eitt herbergi nýtt sem sjónvarpshol (hurð til))
Baðherbergi með góðri innréttingu, sturtu,flísalagt í hólf og gólf, gólfhitalögn.
Þvottaherbergi með flísum á gólf og skolvask
Innangengt í bílskúr í gegnum þvottaherbergi.
Bílskúr er frágenginn. Flísar á gólfi, fjarstýrður bilskúrshurðaopnari. Gott geymsluloft. 2 göngudyr, önnur út í bakgarð og hin við hlið bílskúrshurðar að framanverðu.
Varmaskiptir.
Hellulagt bílaplan. Hiti í innkeyrslu og hellulagðri stétt fyrir framan inngang í hús og yfirbyggð sorpgeymsla fyrir 3 tunnur.
Bílastæði er fyrir allt að 4 bíla á fallegu plani fyrir framan bílskúr.
Endurnýjað: Gler endurnýjað 2024 og gluggar yfirfarnir í leiðinni. Eldhústæki endurnýjað c.a. 2024
Garðurinn er vel við haldinn og fallegur. Þessi fallega eign er í jaðri Akranesbæjar í austur.
Fallegt og vel skipulagt parhús á þessum vinsæla og rólega stað. Örstutt í fallegar göngileiðir sem og Golfvöllinn Garðavöllum.
Nánari upplýsingar veita:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is / sími 861-4644
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.