Fasteignaleitin
Skráð 27. jan. 2023
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
144 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
64.300.000 kr.
Fermetraverð
446.528 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
300060522
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góð verönd og þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS VIÐ GOLFVÖLL* *SÉR GARÐUR OG EINKAÞAKVERÖND*

Glæsileg einbýlishús á tveimur hæðum  í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Húsin eru vel skipulögð, með þakverönd, sér geymslu og sér garði þar sem hægt er að hafa einkasundlaug. Húsin eru með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum, vel skipulögð og rúmgóð.
Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Stutt göngufæri á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Lokað svæði með öryggisgæslu 24/7. 

FRÁBÆRT VERÐ


Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277


Nánari lýsing:
Jarðhæð:

Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými.
Hjónasvíta með fataskáp, sér baðherbergi og útgengi út í garð.
Tvö auka svefnherbergi með góðum fataskápum og baðherbergi.
Þvottahús og auk þess geymsla.
Efri hæð:
Gott svefnherbergi með sér baðherbergi. Gengið út á rúmgóðar þaksvalir.

Út frá stofunni er stór verönd og góður lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla.
Möguleiki á einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.

Verð:
5 herbergja (144 fm. 4 svefnh. og 3 baðh.): Verð frá 389.000  Evrur. + kostn. (64.300.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK)

Á sama stað er einnig hægt að fá 4ra herb. hús, þe. með 3 svefnherbergjum og 2 eða 3 baðherbergjum.
Verð frá 329.000  Evrur. + kostn. (106 fm. 53.800.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK)

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, þakverönd, golf, bílastæði, lokað svæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Fjölbýlishús
423
613 þ.kr./m2
67.400.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
126 m2
Fjölbýlishús
322
517 þ.kr./m2
65.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
121 m2
Einbýlishús
423
539 þ.kr./m2
65.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Spánn - Costa Blanca
177 m2
Einbýlishús
433
347 þ.kr./m2
61.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache