DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 28. nóv. 2025

Strandvegur 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
119.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
795.474 kr./m2
Fasteignamat
95.200.000 kr.
Brunabótamat
72.960.000 kr.
Mynd af Heiðar Friðjónsson
Heiðar Friðjónsson
Löggildur Fasteignasali
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2267901
Landnúmer
194816
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
austur-svalir
Lóð
2,7
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt í sölu - Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning

Smelltu hér til að sjá myndband af eigninni.

Valhöll kynnir fallega og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á Strandvegi 6 í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Tvö stór svefnherbergi. Nýtt eldhús.

Eignin er skráð 119,3 fm að stærð og skiptist hún í 111,8 fm íbúð  og 7,5 fm geymslu sem er staðsett beint fyrir aftan bílastæðið í bílageymslunni. 


Íbúðin er á annarri hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi og skiptist í forstofugang, tvö rúmgóð svefnherbergi, samliggjandi stofu og borðstofu, opið nýtt eldhús, þvottaherbergi með geymslu inn af og baðherbergi. Sérgeymsla er inn af stæði í bílageymslu og þar er einnig dekkja- og hjólageymsla. Sex íbúðir í stigagangi. Góður sameiginlegur gróinn garður með leiktækjum við húsið.

Heiðar fasteignasali sýnir samdægurs. Pantið skoðun í síma 693-3356 eða í tölvupósti á  heidar@valholl.is


Nánari lýsing: 
Forstofa: með fataskáp, myndadyrasíma og eikarparketi á gólfi. 
Eldhús: með nýrri hvítri innréttingu, steini á borðum, stórri eyju, tveimum ofnum og flísum á gólfi.
Borðstofa: rúmgóð með flísum á gólfi.  
Stofa: björt og skemmtileg með nýlegum rúllugardínum fyrir öllum gluggum, eikarparketi á gólfi og útgengi á flísalagðar 7 fm svalir. 
Svefnherbergi I: rúmgott 12 fm herbergi með fataskáp og eikarparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: rúmgott 17 fm herbergi með fataskápum og eikarparketi á gólfi.
Baðherbergi: með eikarinnréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtu og flísum á gólfi.
Þvottaherbergi / geymsla: inn af eldhúsi er flísalagt þvottaherbergi með góðu vinnuborði og geymsla með hillum þar inn af.
Geymsla: 7,5 fm sérgeymsla inn af bílastæði í bílageymslu. Auk þess er hjóla- og vagnageymsla og geymsla fyrir dekk. 
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Dekkjageymsla: sameiginleg í kjallara.
Bílastæði: sérbílastæði í bílakjallara með hleðslustöð.

Þetta er virkilega rúmgóð 3ja herb. íbúð með stæði í bílageymslu á eftirsóttum stað í Sjálandshverfi Garðabæjar þar sem örstutt er í fallegar gönguleiðir, ylströnd, skóla, leikskóla og ýmsa þjónustu.

Allar frekari uppl. um eignina veitir Heiðar Friðjónsson lögg. fasteignasali í síma 693-3356 eða í tölvupósti á heidar@valholl.is  


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/03/202586.750.000 kr.94.500.000 kr.119.3 m2792.120 kr.
26/10/202263.200.000 kr.76.000.000 kr.119.3 m2637.049 kr.
19/01/202263.200.000 kr.74.000.000 kr.119.3 m2620.284 kr.
25/04/201431.350.000 kr.35.000.000 kr.119.3 m2293.378 kr.
16/06/201029.450.000 kr.22.000.000 kr.119.3 m2184.409 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2004
Fasteignanúmer
2267901
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
16
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.360.000 kr.

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10 - 203
Bílastæði
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Hafnarbraut 10 - 203
200 Kópavogur
117.5 m2
Fjölbýlishús
413
919 þ.kr./m2
107.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 - 202
Bílastæði
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Hafnarbraut 10 - 202
200 Kópavogur
132.3 m2
Fjölbýlishús
423
899 þ.kr./m2
118.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 - 201
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Hafnarbraut 10 - 201
200 Kópavogur
63.7 m2
Fjölbýlishús
211
1067 þ.kr./m2
67.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 10 -305
Bílastæði
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Hafnarbraut 10 -305
200 Kópavogur
96.8 m2
Fjölbýlishús
322
950 þ.kr./m2
91.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin