Hlýleg og björt þriggja herbergja endaíbúð með sólpalli og bílskúr í fallegu fjórbýli við Álfatún í Kópavogi.Góð og fjölskylduvæn staðsetning í botnlangagötu neðst við Fossvogsdalinn.
* Bílskúr er skráður 18,4 m2
* Sólpallur með skjólveggjum til suðurs
* Sérsturta og baðkarViðhald eignar síðastliðin ár tiltelur ma. :2017 var Hús og þak málað að utan
2018 var endurnýjað parket, flísar í forstofu, hurðar, tenglar
2020 var baðinnrétting endurnýjuð, sett ný blöndunartæki og flísar epoxylakkaðar, sólpallur byggður, bakarofn og helluborð í eldhús endurnýjað.
2021 var endurnýjað teppi á stigagangi og sameign máluð
2022 var sett dren aftan við hús og leiktæki endurnýjuð
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 105,8 m2. Óskráðir fermetrar eru sérgeymsla sem er er um 8 m2 og er því réttari
heildarstærð eignarinnar í raun um 113,8 m2.
Eignin skiptist í forstofu, stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi, bílskúr og geymslu. Forstofa er flísalögð.
Stofa / borðstofa er björt og opin með gluggum í tvær áttir, gólfsíður gluggi á gafli hússins setur fallegan brag á rýmið. Útgengi út á
nýlegan timburpall. Parket á gólfi.
Eldhús með U-laga eldhúsinnréttingu og borðkrók. Skipt um bakaraofn og helluborð 2020. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með handlaug, wc, baðkar og sér sturta.
Svefnherbergi 1 með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Á jarðhæð er
bílskúr og inn af bílskúr er rúmgóð
geymsla.Í sameign er
þvottahús,
þurrkherbergi þar sem hver íbúð hefur pláss fyrir sín tæki. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Lóðin er með góðum leiktækjum fyrir börn. Miklum gróðri og fallegum trjám sem gerir umhverfið mjög hlýlegt og skemmtilegt.
Einstök staðsetning í næsta nágrenni við Fossvogsdalinn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.