RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á frábærum stað að Hofteig 22.
Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 84,3 fm, þar af er íbúðin 77 fm og geymslan 7,3 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi og sér geymslu í sameign hússins.
Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápur. Parket á gólfi. Geymsluskápur við inngang íbúðarinnar.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, en rýmið var endurnýjað að stórum hluta árið 2021. Bakaraofn, helluborð og vaskur. Gluggi í rýminu. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Bjart og fallegt rými. Útgengt út á svalir frá rýminu. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi. Rennihurð inn í stofu.
Baðherbergi: Rýmið var fallega endurnýjað árið 2021.
Flísar á gólfi og veggjum. Hvít baðinnrétting með handlaug. Speglaskápur fyrir ofan innréttingu. Baðkar með innbyggðum sturtutækjum og glerþil. Salerni. Gluggi í rýminu.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara hússins, ásamt sameiginlegri geymslu.
Geymsla: Staðsett í sameign hússins. 7,3 fm.
Húsið og íbúðin hafa fengið gott viðhald í gegnum árin. Hér að neðan er að finna útlistun á helstu framkvæmdum síðustu ára:2024 - Þakrennur yfirfarðar, rakaskemmd lagfærð í hjónaherbergi og svalaveggir málaðir.
2022 - Stigangur teppalagður og málaður.
2021 - Núverandi eigendur endurnýjuðu íbúðina að stórum hluta. Eldhús endurnýjað, þ.e.a.s. nýjar flísar, tæki, rafmagnstafla fyrir rýmið, og innrétting að hluta. Ný gólfefni á alla íbúðina og hluti ofna endurnýjaðir. Baðherbergið endurnýjað. Inngangshurð íbúðar endurnýjuð í brunahurð.
2018 - Hús múrviðgert og allt húsið steinað
2011 - Dyrasímakerfi endurnýjað
2010 - Þak tekið í gegn. Nýtt þakjárn, nýjar þaktúður og gert við trévirki þar sem þurfti. Gler íbúðar endurnýjað, trélistar og opnanleg fög. Ný svalahurð.
2008 - Fráveitukerfi/ skólplagnir teknar í gegn og dren sett í kringum húsið.
Húsið:Um er að ræða sérlega reisluegt hús með sex íbúðum. Húsið er byggt árið 1948 og hefur það fengið gott viðhald í gegnum árin. Húsið skiptist í kjallara, tvær hæðir og ris.
Annað:Íbúðin er frábærlega vel staðsett í þessu vinsæla hverfi, en stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, útivist, leiksvæði og aðra þjónustu.
Allar frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is