Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Rúmgóð, björt og falleg 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í tvíbýli að Mánastíg 2 í Hafnarfirði. Eignin er samtals skráð skv. Þjóðskrá Íslands 77,5 fm. og skiptist í hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu og sér þvottaherbergi innan íbúðar. Einnig er sameiginleg geymsla á jarðhæð sameignar. Fallegur gróinn garður og lóð. Frábær staðsetning við tjörnina og í nokkurra mínútna göngufjarlægð í Fjörð verslunarmiðstöð, verslanir, leik- og grunnskóla.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.isNánari lýsing:Anddyri með flísum á gólfi.
Forstofa/Gang: Gengið er inn í flísalagða forstofu/gang með fatahengi og hirslu. Gangurinn tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi. Búið er að koma fyrir fataskápum hjónaherbergis yfir í barnaherbergið.
Barnaherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi. Núverandi eigandi hagnýtir herbergið sem fataherbergi.
Baðherbergið er mikið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, búið fallegri hvítri innréttingu með neðri skúffum, handlaug og efri speglaskáp, handklæðaofni og walk in sturta með hertu gleri.
Eldhús: með grárri innréttingu með svörtum handföngum, helluborði, nýlegum innbyggðum kæliskáp, uppþvottavél og nýlegum vask með blöndunartækjum með útdraganlegum barka. Harðparket á gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu. Fallegt harðparket á gólfi.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er innan íbúðarinnar með hvítri innréttingu með stæðum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skápaplássi og vinnuaðstöðu.
Geymsla: Sameiginleg geymsla á jarðhæð. Sameignin er skráð 11,8 fm.
Garður/Lóð: Falleg sameiginleg gróinn lóð með gróðri og trjám.
Góð aðkoma er að húsinu og er eignin og umhverfið virkar mjög snyrtilegt.
Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á mjög vinsælum stað í hjarta Hafnarfjarðar. Göngufæri er í leik- grunnskóla, verslanir, góðar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjávarsíðunni svo dæmi séu nefnd.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is