DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 11. júní 2026

Jöfursbás 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
55.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.131.564 kr.
Fermetraverð
959.054 kr./m2
Fasteignamat
53.500.000 kr.
Brunabótamat
36.550.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2516212
Landnúmer
228389
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu 55,4 fermetra 3ja herbergja íbúð með svölum til vesturs á 3. hæð í góðu og nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu og sérinngangi af svölum við Jöfursbás 11a í Gufunesi.  Sameiginleg bílastæði á lóð með hleðslustöðvum.  Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á lóð og sameiginlegt þvottaherbergi með sameiginlegum vélum á jarðhæð.

**** ATH. Forgang að kaupum eignarinnar hefur ungt fólk og fyrstu kaupendur á aldreinum 18-40 ára ****


Nánari lýsing:

Forstofa, flísalögð og með fataskápum.
Eldhús, parketlagt og bjart með gluggum til austurs. Fallegar hvítar innréttingar með spanhelluborði með háfi yfir og innbyggðri uppþvottavél í innréttingu. 
Stofa, opin við stofu, parketlögð og björt með stórum gluggum til vesturs og útgengi á vestursvalir með fallegu sjávarútsýni. 
Hjónaherbergi, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi, dúklagt gólf, gólfsturta, vegghengt wc, vaskskápar og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Barnaherbergi, parketlagt og með fataskápum. 

Verið er að útbúa sameiginlegan sal í sameign og er hann ætlaður til afnota fyrir íbúa, t.d. undir fundarhöld, veislur og slíkt.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Byggð Þorpsins-Vistfélags í Jöfursbási 11 í Gufunesi er brotin upp í þriggja til fimm hæða þyrpingu íbúðarhúsa sem hverfist um miðlægt torg og garða. Íbúðir eru samtals 137. Göngustígar í nágrenni eru tengdir inn og í gegnum í svæðið. Áhersla er á vandaða hönnun og góða rýmisnýtingu íbúðanna sem eru af fjórum gerðum; stúdíó, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Þrír stiga- og lyftukjarnar eru í íbúðarhúsunum og eru þau tengd saman um svalaganga og brýr. Byggðin hefur létt yfirbragð og er fjölbreytt í lita- og efnisvali. Um er að ræða 5 íbúðarhús, 3ja hæða í suðurhluta og 4ra hæða í vestur- og miðhluta og 5 hæða í austurhluta lóðarinnar.Staðsetning húsa innan hverfisins er ákvörðuð eftir veðurfræðilegri ráðgjöf til að mynda skjól um sólríka garða og torg.

Húsin eru verksmiðjuframleidd úr steyptum einingum sem gerðar eru innanhúss við bestu aðstæður. Burðarkerfi húsanna er byggt upp með forsteyptum svokölluðum samlokueiningum í útveggjum. Undirstöður eru forsteyptar en botnplata er staðsteypt. Innveggir á milli íbúða og íbúða og gangs eru úr forsteyptum einingum. Einangrun útveggja er forsteypt í samlokuútveggjaeiningarnar. Gluggar og hurðir eru úr timbri, formálaðir og settir í eftirá. Svalir og svalagangar eru úr forsteyptum einingum sem sitja á stálsúlum.
Sameiginleg sameign allra áfanga eru byggðir í öðrum áfanga utan hjóla- og vagnagreymslu sem er byggð samhliða fjórða áfanga.

Íbúðirnar eru á sjávarlóð nyrst í Gufunesi. Frá lóðinni er glæsilegt útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Í hverfinu og meðfram lóðinni verða göngu- og hjólastígar á borgarlandi meðfram ströndinni sem tengjast grónum íbúðasvæðum í Grafarvogi fyrir sunnan og ofan þessarar nýju byggðar. Megin stígar innan lóðar eru malbikaðir, við aðkomu og innganga eru stéttar hellulagðar. Lögð er áhersla á algilda hönnun þar sem aðgengi allra er tryggt. Gert er ráð fyrir trjágróðri við megin gönguleiðir og til rýmismyndunar við dvalarsvæði. Íbúðarhúsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leikvöll og grasfleti. Torgið er við aðalinngang hverfisins við sameiginleg rými íbúa. Leik- og dvalaraðstaða er norðan megin gegnt ströndinni. Tekið er tillit til sólarátta og byggð skipulögð þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli fyrir veðri og vindum.Lögð er áhersla á sameiginlegan frágang allra garðrýma.

Við íbúðarbyggðina eru matjurtagarðar í landi Reykjavíkurborgar til afnota fyrir íbúa til ræktunar. Þar er heimilt að gera vermireiti og gróðurskýli.

Deiliskipulag fyrir Gufunes, nýjasta hverfi Reykjavíkur, byggir á verðlaunatillögu hollensku arkitektastofunnar jvantspijker + Felixx sem árið 2016 hreppti fyrstu verðlaun í hugmyndasamkeppni um Gufunessvæðið. Í vinningstillögunni segir að Gufunes eigi að verða eins konar ventill fyrir ungt fólk sem kýs grósku og borgarbrag í stað úthverfa. Tillagan nýtir óhefluð umhverfisgæði og staðaranda sem grunn að samfélagi þar sem tækifæri, hagkvæmni og upplifun verða í forgrunni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/03/202216.450.000 kr.34.571.000 kr.55.4 m2624.025 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 7 íb. 306
Opið hús:11. júní kl 17:00-17:30
Baughamar 7 íb. 306
221 Hafnarfjörður
68.5 m2
Fjölbýlishús
211
926 þ.kr./m2
63.400.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
1.jpg
Ánanaust 3- Penthouse- Vesturvin 3
101 Reykjavík
236.3 m2
Fjölbýlishús
332
Fasteignamat 188.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Baughamar 7 íb. 209
Opið hús:11. júní kl 17:00-17:30
Baughamar 7 íb. 209
221 Hafnarfjörður
95.5 m2
Fjölbýlishús
413
784 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 7 íb. 106
Opið hús:11. júní kl 17:00-17:30
Baughamar 7 íb. 106
221 Hafnarfjörður
69 m2
Fjölbýlishús
211
912 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin