DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 24. nóv. 2026

Böðvarsgata 6

Tví/Þrí/FjórbýliVesturland/Borgarnes-310
104.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
553.009 kr./m2
Fasteignamat
45.350.000 kr.
Brunabótamat
60.300.000 kr.
Mynd af Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Gunnlaugur Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
8990720Eignalisti
Byggt 1969
Jarðhæð af 2
Garður
Svalir
Pallur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
2111237
Landnúmer
135577
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað 2020
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað 2020
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir 2019
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala í Borgarnesi kynna:

Neðri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi og mikið endurnýjaða við Böðvarsgötu 6, Borganesi.

Um er að ræða tvílift, staðsteypt hús, á tveimur hæðum með efri og neðri hæð með sérinngangi báðar, byggt 1969.

Íbúðin er mikið endurnýjuð, góð forstofa, sér þvottahúsi innan íbúðar, sérgeymsla/búr, eldhús, borðstofa og rúmgóð stofa með útgengi á suðurverönd. Svefnhergergisgangur með þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Sér köld geymsla, gengið inn af lóð, fylgir þessari íbúð. Sameiginleg geymsla/inntaksrými undir stiga. Bílastæði þessa húss eru við suðurhlið hússins og bílastæði þessara íbúðar er nær húsinu.

Birt stærðar íbúðar er samtals 104,7 fm.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is


Helstu endurbætur:
2026 - Þakrennur á bakhlið endurnýjaðar.
2025 - Öll svefnherbergi og gangur sparslað og málað.
2023 - Veggir hússins voru sprungufylltir fyrir mörgum árum og svo var aftur fyllt í sprungur á gafli 2023.
2020 - Neysluvatn allt tekið í gegn og endurnýjaðar lagnir inn í húsið, settur nýr varmaskiptir.
2020 - Skipt um alla ofna og búið að skipa einnig um allar ofnalagnir frá inntaki og inn að hverjum ofni.
2020 - Skólplagnir endurnýjaðar frá húsi og út í götu.
2020 - Baðherbergi gert upp, settar nýjar vatnslagnir, flísar á gólfi, blöndunartæki og þá sett nýtt sturtugler, vegghengt salerni, flísar á gólf og wc kassa, hiti settur í gólf.
2020 - Þvottahús, forstofa og búr allt tekið í gegn, hiti í gólfi forstofu og þvottahúss.
2018 - voru allir gluggar í íbúðinni endurnýjaðir ásamt svalahurð og útidyrahurð.

Framkvæmdir án ártals en á síðustu árum:
Rafmagn var sett nýtt fyrir þvottavél og þurrkara í þvottahúsi, einnig nýir tenglar inni á baði og settur upp handklæðaofn í þvottahúsi.
Innréttingar eru eldri í eldhúsi (ca. 1992).
Innihurðir eru upprunalegar og einn upprunalegur innbyggður skápur í einu svefnherberginu.
Gólfefni hafa verið endurnýjuð að hluta, flísar á forstofu, þvottahúsi og baðherbergi ásamt búri/geymslu. 

Helstu hlutir sem liggja fyrir að þurfi að gera:
Klára múrun að utan og mála húsið.
Lagfæring í gólfi eftir endurnýjun ofnalagna í eldhúsi, borðstofu og við ofn í stofu.

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Innaf forstofunni er þvottahús, rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt því að handklæðaofn er á vegg, flísar á gólfi. Gengið er úr forstofu inn í holið þar sem borðstofan er og innaf henni er eldhúsið. Eldhúsið er með eldri innréttingu á þremur veggjum, efri og neðri skápar, pláss fyrir einfaldan ísskáp og pláss fyrir uppþvottavél í innréttingu. Innaf borðstofunni er búr/geymsla með flísum á gólfi. Borðstofa og eldhús eru flísalögð. Stofan er rúmgóð með stórum suðurglugga og útgengt er á verönd sem er hellulögð og aðgengi þaðan út í gróin garð. Stofan er parketlögð. Sér svefnherbergisgangur er liggur að þremur svefnherbergjum og baðherbergi með sturtu. Svefnherbergin eru öll parketlögð og eitt þeirra er með innbyggðum eldri fataskáp en hin tvö eru án fataskápa en pláss er fyrir þá innbyggt í veggi (búið að fjarlægja eldri skápa). Baðherbergið er flísalagt með upphengdu wc, sturtu og hrislum með vask í. Gólfið á ganginum er steypt og án gólfefna. 

Virkilega áhugaverð og mikið endurnýjuð eign vel staðsett á vinsælum stað í Borgarnesi þar sem stutt er í skóla, íþróttamannvirki, sundlaug, verslanir, veitingastaði og alla helstu þjónstu.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is

Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.






 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/04/201816.450.000 kr.21.500.000 kr.104.7 m2205.348 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 11
Opið hús:29. nóv. kl 14:30-15:00
028_01_img_9986.jpg
Skoða eignina Vorbraut 11
Vorbraut 11
210 Garðabær
124,2 m2
Fjölbýlishús
413
957 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9
Opið hús:29. nóv. kl 14:30-15:00
024_01_img_9966.jpg
Skoða eignina Vorbraut 9
Vorbraut 9
210 Garðabær
100,1 m2
Fjölbýlishús
413
998 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbakki 19A
Norðurbakki 19b.jpg
Skoða eignina Norðurbakki 19A
Norðurbakki 19A
220 Hafnarfjörður
105,8 m2
Fjölbýlishús
312
916 þ.kr./m2
96.900.000 kr.
Skoða eignina Hvassaleiti 56
67 ára og eldri
Opið hús:29. nóv. kl 15:00-15:30
Skoða eignina Hvassaleiti 56
Hvassaleiti 56
103 Reykjavík
101,5 m2
Fjölbýlishús
312
961 þ.kr./m2
97.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin