DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 21. maí 2026

SPÁNAREIGNIR - Playa Flamenca

Nýbygging • FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
97 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
29.000.000 kr.
Fermetraverð
298.969 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
293210526
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir/Þaksvalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *FALLEGA PENTHOUSE ÍBÚÐ Í GÖNGUFÆRI VIÐ STRÖND* *SUÐURSVALIR* *ÞAKSVALIR* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* *FRÁBÆR STAÐSETNING Í GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG LA ZENIA BOULEVARD*

Þessi fallega þakíbúð er afskaplega rúmgóð, björt og notaleg og er staðsett á einu eftirsóttasta svæði Costa Blanca! Eignin er staðsett í Playa Flamenca (Orihuela Costa) og er bókstaflega nálægt öllu: fjölmörgum ströndum, Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni, matvöruverslunum, veitingastöðum, skólum, íþróttasvæðum og allri nauðsynlegri þjónustu. Svæðið er mjög vinsælt fyrir alþjóðlegt andrúmsloft og fjölbreytta afþreyingu allt árið um kring.

Upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, Sími 0034 615 112 869


Nánari lýsing:
Í íbúðinni er mjög falleg stofa og borðstofa með beinu útgengi á suðursvalir með glerlokun, sem eru einstaklega sólríkar og fullkomnar til að njóta birtunnar allt árið um kring. Aðskilið eldhús er vel skipulagt, með fallegri nýlegri innréttingu og þaðan er gengið út í bjart og snyrtilegt þvottaherbergi með geymsluplássi. Svefnherbergin eru þrjú, björt og notaleg með innbyggðum fataskápum og baðherbergið er rúmgott með sturtu.

Rúsínan í pylsuendanum eru hinar glæsilegu 79 m² þaksvalir; einstakt útisvæði með frábæru sjávarútsýni og hreinlega útsýni til allra átta — þar er tilvalið að slaka á saman og njóta sólarinnar sem þar skín allan daginn. Íbúðakjarninn er í rólegu umhverfi og þar er sameiginleg sundlaug, sem gerir þessa þakíbúð að fullkomnum stað til að slappa af og njóta miðjarðarhafsloftslagsins.

Eigning selst fullbúin húsgögnum og því hægt að flytja inn og njóta frá fyrsta degi.

Einstakt tækifæri til að eignast rúmgóða og fallega íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi. 

Verð 199.990 evrur eða 29.000.000 ISK - 1Evra=145ISK

Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín göngufæri á Playa Flamenca ströndina, 10 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, flottu verslunarmiðstöðina og aðeins 5 mín. rölt á vinsæla laugardagsmarkaðinn í Playa Flamenca. Lidl, Mercadona og úrval fleiri verslana og veitingastaða örstutt frá. Gróið og fallegt umhverfi. Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í örstuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche. 

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar http://www.spanareignir.is

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: sundlaugargarður, suðursvalir, þaksvalir, air con, lyfta, 
Svæði: Costa Blanca, Playa Flamenca,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eirhöfði 7a (301)
Eirhöfði7a_301.jpg
Eirhöfði 7a (301)
110 Reykjavík
137.3 m2
Fjölbýlishús
423
1034 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Skoða eignina Fuglavík 35 C
Skoða eignina Fuglavík 35 C
Fuglavík 35 C
230 Reykjanesbær
80.5 m2
Atvinnuhúsn.
371 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Fuglavík 35 D
Skoða eignina Fuglavík 35 D
Fuglavík 35 D
230 Reykjanesbær
80.5 m2
Atvinnuhúsn.
371 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Fuglavík 35 E
Skoða eignina Fuglavík 35 E
Fuglavík 35 E
230 Reykjanesbær
80.5 m2
Atvinnuhúsn.
371 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin