RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. ( s.774-1477 / herabjork@remax.is ) kynna : Rúmgóð, björt 3ja herbergja íbúð með stórum og skjólsælum suðursvölum á 2. hæð í nýlegu og vönduðu fjölbýli með lyftu og góðu aðgengi að bílakjallara við Hallgerðargötu 11 í Laugarnesinu, 105 Reykjavík. Staðsetningin er þægileg með gott aðgengi að almenningssamgöngum og stutt í helstu stofnbrautir.
- Rúmgóðar svalir í suður – ljós, rými og ró
- Glæsilegt alrými með vandaðri hönnun
- Nýlegt hús með lyftu og aðgengi að bílakjallara
** SMELLIÐ HÉR fyrir ítarlegri upplýsingar og/eða bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **
Nánar um eign: Um er að ræða vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, merkt 220, samtals 88,7 m² að stærð. Íbúðin samanstendur af forstofu, björtu og opnu alrými (eldhús, borðstofa og stofa), tveimur góðum svefnherbergjum, glæsilegu baðherbergi og rúmgóðri sérgeymslu (9 m²) í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla er í sameign og aðgengi að bílakjallara með hleðslustöðvum.
** SMELLTU HÉR og skoðaðu ÍBÚÐINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð og snyrtileg með fataskáp og parketi á gólfi.
Alrými - eldhús/stofa/borðstofa: Komið er inn í bjart og opið alrými sem nýtist einstaklega vel. Eldhúsið er með fallegri og vandaðri sérsmíðaðri innréttingu með góðu skápaplássi og ljúflokun á skúffum og skápum. Öll tæki eru frá AEG og svört borðplata frá Egger gefur rýminu nútímalegt yfirbragð. Eyja með háf yfir myndar fallegan miðpunkt. Parket er á gólfi. Úr alrými er gengið út á rúmgóðar, skjólsælar 16,1 m² suðursvalir sem njóta mikillar birtu.
Herbergi I: Rúmgott herbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Herbergi II: Gott herbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Stílhreint og vel hannað, flísalagt í hólf og gólf með rúmgóðri „walk-in“ sturtu, fallegri innréttingu og spegli með baklýsingu. Rými er fyrir þvottavél og þurrkara sem fellur snyrtilega inn í heildina.
Gólfefni og innviðir íbúðar: Harðparket frá Álfaborg er á gólfum að undanskildu baðherbergi sem er flísalagt. Fataskápar eru í sama stíl og innréttingar og skapa samræmt og fallegt yfirbragð. Innihurðir eru hvítar, yfirfelldar frá Parka.
Geymsla: Rúmgóð 9 m² sérgeymsla í kjallara. Sameiginleg hjólageymsla í sameign.
Bílastæði: Íbúar hafa forgang að 57 bílastæðum í bílastæðahúsi við Hallgerðargötu 1, 1A, 11 og 11A. Afnot eru samkvæmt samningi við rekstrafélag hússins. Leiguverð er kr. 8.700 á mánuði fyrir stæði allan sólarhringinn. Gott aðgengi er að hleðslustöðvum og íbúðin hefur áskriftarrétt í B flokki.
Hallgerðargata 11 er fallegt og vandað steinsteypt hús, byggt árið 2023 af Reir Verk ehf., einangrað og klætt að utan með áli og vel staðsett í grónu hverfi þar sem stutt er í útivistarsvæði Laugarness og Laugardals, fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og fjölbreytta þjónustu í Borgartúni. Í íbúðakjarnanum sjálfum er einnig lifandi og notalegt torg þar sem finna má verslanir, kaffihús, hárgreiðslustofu og aðra þjónustu sem gerir daglegt líf bæði einfalt og skemmtilegt. Torgið er fallega upplýst og hannað með samveru í huga – þar skapast kjörin aðstaða fyrir íbúa til að hittast, njóta stundarinnar og taka þátt í viðburðum á borð við markaði, hverfishátíðir og aðra skemmtilega viðburði. Í göngufæri er svo Laugalækur með sínum sjarma og fjölbreyttu sérverslunum. Heilsugæslan Kirkjusandi er í næsta nágrenni með þægilegu aðgengi og innangengt úr bílastæðahúsi ef vill.
Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.Allar nánari upplýsingar veitir:
Hera Björk, löggiltur fasteignasali í síma 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar. Ekki hika við að hafa samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat og samtal ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref. Ég er í síma
774-1477 og einnig má senda mér póst á netfangið
herabjork@remax.is