DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 4. nóv. 2026

Haukahlíð 2 - íbúð 515

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
80.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
1.234.707 kr./m2
5. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532734
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Hlíðarhorn.is kynnir Haukahlíð 2, 102 Reykjavík - Íbúð 515.

Hlíðarhorn.is kynnir Haukahlíð 2, 102 Reykjavík - Íbúð 221. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fullbúin í desember 2026 með fyrirvara um öryggisúttekt.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 74,175,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, sendu fyrirspurn á s8@s8.is eða hlidarhorn@s8.is. Þú getur líka hringt í síma 4152500 og fengið allar upplýsingar frá starfsmönnum S8 ehf, bókað skoðun í Hlíðarhorni og mátað íbúðina.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Vönduð og virðuleg 3ja herbergja þakíbúð á 5. hæð. Íbúðin snýr inn í innri garð. Birt stærð er 80,1 fm þar af 9,8 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í opið anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðaraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Hlíð 1.

 

Nánari lýsing: Góður fataskápur í opnu anddyri. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Eldhús er með eyju. Útgengt er á suðursvalirn inn í innri garð. Eldhúsinnrétting með fallegri hnotuáferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og blöndunartæki úr burstuðu kopar/gulllituðu stáli. Innbyggður ísskápur. Bjart og rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, innrétting með hnotuáferð og speglaskápur. Blöndunartæki á baði úr svörtu möttu stáli. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0102 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi sem er í eigu S8 ehf. en úthlutað er föstum leigusamningum til ákveðinna íbúða til 10 ára að lágmarki. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá link að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 170 íb 317 - Heklureitur
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb 317 - Heklureitur
105 Reykjavík
77,8 m2
Fjölbýlishús
312
1014 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb 303 - Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb 303 - Heklureitur
105 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
312
1081 þ.kr./m2
105.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb 205 - Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb 205 - Heklureitur
105 Reykjavík
87,6 m2
Fjölbýlishús
312
1061 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 - Heklureitur íb 401
Opið hús:08. nóv. kl 13:00-14:00
Laugavegur 168 - Heklureitur íb 401
105 Reykjavík
75,5 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin