Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu einstaklega fallegt og vel skipulagt 255,9 fermetra einbýlishús á þremur hæðum með 38,1 fermetra innbyggðum bílskúr sem er innréttaður sem íbúð á frábærum stað við Jakasel í Reykjavík ásamt stúdíóbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Nýtt hellulagt bílaplan ásamt tveimur geymsluskúrum 10 og 20 fermetra og 10 fermetra gróðurhúsi er á lóðinni. Búið er að tengi fyrir rafhleðslu og er bílastæði fyrir allt að 5 bíla.
Eignin stendur á 680,0 fermetra lóð sem er með hellulögnum að framan með heitum potti, hellulögðu bílaplani og upphituðu bílaplani fyrir framan bílskúr, tveimur viðarveröndum, tyrfðum flötum og trjágróðri.
Eignin hefur verið mikið endurnýjað að undanförnu og var húsið var málað síðastliðið sumar og sett nýtt handrið á svalir hússins. Kaldavatnslagnir frá baðherbergi efri hæðar voru endurnýjaðar nýlega og nýtt parket var lagt á aðalhæðina ásamt því að endurbæta íbúð í bílskúr.
Eignin skiptist þannig: á aðalhæð eru forstofa, svefnherbergi, hol, eldhús, borðstofa, stofa og gestasnyrting. Á efri hæð hússins eru sjónvarpskrókur, baðherbergi, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Á jarðhæð suðvestan megin er bílskúr sem búið er að gera íbúð með sérinngangi og einnig er rúmgóð stúdíóíbúð með sérinngangi á jarðhæð. Möguleiki er á góðum leigutekjum.
Lýsing eignar:
Aðalhæð,
Forstofa, rúmgóð, flísalögð og með fataskáp.
Barnaherbergi I, rúmgott, parketlagt og með fataskáp.
Hol, parketlagt, bjart, og opið við stofu.
Stofa, parketlögð, björt, og gengið út á rúmgóðar svalir sem eru á tveim hliðum hússins.
Borðstofa, parketlögð, björt og opin við stofu.
Eldhús, rúmgott með flísalögðu gólfi og góðri borðaðstöðu. Málaðar viðarinnréttingar með flísum á milli skápa og hluta veggja, nýr ofn í vinnuhæð og tengi er fyrir uppþvottavél.
Gestsnyrting, með glugga, flísalagt gólf, ný blöndunartæki,veggfóður á vegg með upphengdu wc og innréttingu við vask.
Gengið er upp á efri hæð hússins um fallegan teppalagðan stiga. Aukin lofthæð er á hluta efri hæð hússins og einnig er hluti undir súð þannig að gólfflötur er stærri en uppgefið er í fermetrafjölda.
Efri hæð,
Gangur, parketlagður.
Hjónaherbergi, rúmgott, parketlagt með sérsmíðuðum fataskáp og útgengið á svalir.
Barnaherbergi II, parketlagt með fataskáp..
Barnaherbergi III, parketlagt með fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, innrétting, baðkar og sturtuklefi. Tengi er fyrir þvottavél.
Stúdíóíbúð á neðri hæð er með aðgengi innanhúss þar sem er gott geymslurými og einnig er sérinngangur.
Forstofa, flísalögð með fatahengi.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, flíslögð sturta, upphengt wc og innrétting.
Eldhús, parketlagt gólf með léttri innréttingu með vaski, ískáp og borðaðstöðu.
Herbergi, parketlagt og opið við eldhús.
Aukaíbúð í bílskúr.
Forstofa, flísalögð og rúmgóð með fatahengi.
Eldhús / stofa, í einu rými, parketlagt með hvítri ikea innréttingu, viðarborðplötu og borðaðstöðu.
Herbergi, parketlagt með inngengu fataherbergi með innréttingum.
Baðherbergi, með glugga, málað gólf og veggir, sturtuklefi, innrétting og tengi fyrir þvottavél.
Húsið er frábærlega staðsett í Seljahverfinu. Hverfið er kyrrlátt og rólegt og stutt er út á stofnbrautir. Stutt er í leikskóla, skóla, verslun, þjónustu og falleg útivistasvæði.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða í netfanginu fastmark@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.