DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:12. mars kl 18:15-18:45
Skráð 9. mars 2026

Drangsskarð 11

HæðHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
112.2 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
890.374 kr./m2
Fasteignamat
80.150.000 kr.
Brunabótamat
68.650.000 kr.
Mynd af Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2528469
Landnúmer
225473
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
Uprunanlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalalokun
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Glæsileg 111 m² einstaklega björt og mjög vel hönnuð efri sérhæð í einstaklega fallegu húsi við Drangsskarð 11. Fallegt útsýni er frá íbúðinni sem hægt er njóta frá gluggum í þrjár áttir ásamt rúmgóðum svölum með svalalokun.

Drangsskarð 11 hlaut verðlaun Hafnarfjarðarbæjar fyrir frágang á lóð. Mikið hefur verið lagt í frágang bæði að innan sem utan. Góðar svalir til suðvesturs með svalalokun. Eignin er sett upp sem þriggja herbergja en gert er ráð fyrir að hægt sé með auðveldum hætti að bæta við þriðja herberginu. Gólfhiti, ljósar Quartz borðplötur (Dekton), Siemens raftæki, niðurfellt spanhelluborð, undirlímdur vaskur, innfelldar led lýsingar o.f.l.. Sérmerkt bílastæði fyrir utan eignina ásamt sameiginlegu bílastæði. Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum rýmum íbúðarinnar endurnýtir hitann og skilar heimilinu góðum loftgæðum.



Um er að ræða fyrstu Svansvottaða bygginguna í Hafnarfirði!

Skipting eignar: Sérinngangur.
Rúmgott anddyri með góðum fataskáp.
Inn af anddyri er þvottahús/geymsla með stórum búrskáp, þvottahússkáp og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Frá anddyri er komið inn í stórt opið rými, stofu, borðstofu og eldhús.
Stofan er einstaklega björt og með fallegu útsýni ásamt góðri borðstofu. frá stofunni er útgengt á fallegar svalir með svalalokun sem snúa til suðurs og vesturs. 
Möguleiki er að útbúa þriðja herbergið úr hluta stofunnar en í dag er það nýtt sem "afslöppunar horn"
Fallegt eldhús með djúpri borðplötu þar sem er gert ráð fyrir tækjageymslu. Stór eldunareyja sem hægt er að sitja við.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt að hluta með vönduðum 60*60 flísum.
Í sameign er sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla ásamt tæknirými

Nánari lýsing:
SVANSVOTTUN
Það þýðir að húsin eru byggð eftir gæðakerfi þar sem tekið er á fjölmörgum þáttum sem byggingarreglugerð nær ekki yfir að sama marki. Má þar nefna: lágmarks rekstrarkostnaður, valin byggingarefni með hollustu íbúa og umhverfisáhrif í huga.
LOFTSKIPTIKERFI
 hverri íbúð er sjálfstætt Komfovent loftræstikerfi sem að blæs inn í öll rými íbúðar fersku lofti sem að hitað er upp með lofti sem að sogað er út. Nýtnin á orkunni þar er um 87%. Þetta þýðir lægri rekstrarkostnað en umfram allt betri loftgæði. Kerfið heldur líka loftinu á hreyfingu og í því eru líka síur fyrir loftið sem blásið er inn.
GÓLFHITI
Upphitun er með gólfhita en eini ofninn er handklæðaofn. Gólfhitagrindin er innfeld í veggnum og lokað með þjónustulúgu. Gólfhiti og loftræstikerfi vinna mjög vel saman og skila góðum loftgæðum. BAÐHERBERGI Stór og breið sturta. Sturtuglerið er ekki með slá heldur svörtum ramma og stöng upp í loft. Vandaðar flísar 60*60 flísar bæði á veggjum og gólfi. Spegill með baklýsingu. Innbyggður klósettkassi.
STÓRIR FATASKÁPAR
Stórir skápar bæði í anddyri og báðum svefnherbergjum. Skáparnir sem eru frá ikea eru frekar vel búnir af innvolsi en með einni ferð í IKEA geta kaupendur mótað þá eftir sínum þörfum.
ELDHÚS
Eldhúsborðið vegg megin er með dýpri borðplötu þannig að rými er fyrir kaffivél, brauðrist og slíkt fyrir innan án þess að rýra vinnuplássið á borðinu. Tenglar eru undir yfirskápum þannig að auðvelt er að þrífa veggplötuna á bak við sem að er hvít og slétt. Dekton borðplötur frá Cosentino úr quartz steini. Siemens raftæki og spanhelluborð er fellt niður í steinborð þannig að það er slétt við borðplötuna. Undirfelldur eldhúsvaskur. Undir efriskápum er LED undirskápaljós. Bakhliðin á eldhúseyjunni er klætt með hljóðdempandi þiljum.
INNFELLD LED LÝSING
Yfir eyju og framan við svefnherbergi eru innfelld 2ja metra LED ljós sem gefa nútímalegan tón og birtu. RAFLAGNIR Tenglar og rofar eru svart efni úr Q-línunni frá Berker. GÓLFEFNI Parketið er Buckingham eik og er 12 mm harðparket frá Byko og er með hörkustuðulinn AC5/33. Undir parketi jafnt sem flísum er hljóðdempandi undirlag bæði á efri og neðri hæðum. UTANHÚSSKLÆÐNING Lárétt svart klassískt bárujárn. Sementsplötur frá Viroc. Standandi 22 mm opin timburklæðning í anddyri og svalainnskoti.
TORFÞAK
Bara eins og í gamla daga þá er torfþak á húsinu með úthagatorfi sem aldrei þarf að slá. Það gefur m.a. friðað svæði fyrir fugla.
VIÐHALDSLÉTT LÓÐ
Göngustígar eru hellulagðir og með snjóbræðslu sem og allar tröppur. Þrír hvíldarpallar eru án snjóbræðslu. Við lóðarmörk bæði austan og vestan megin er lóðin tyrfð með úthagatorfi sem þarf aldrei að slá en á sérafnotaflötum og innar í lóðinni er hvítsmáratorf. Lesa má um þessar torftegundir inni á torf.is. Bílastæðin eru með nautsterkum Ecoraster grindum fylltum af möl. ÚTILÝSING Útilýsingin sem er við öll anddyri og svalir er 2ja metra innfelld óbein LED lýsing. Tröppur í lóð eru með handriðum með lýsingu undir handlistanum. Útilýsingin gefur einstaklega fallegt yfirbragð yfir eignirnar þegar dimma tekur.
HLEÐSLA RAFBÍLA
Lagnaleiðir eru að hleðslu rafbíla á 10 stöðum á lóðinni. Í aðaltöflu er gert ráð fyrir að hægt sé að tengja hleðslu rafbíls inn á rafmagnsmælir á hverri íbúð fyrir sig. Fallegir hleðslustaurar eru uppsettir fyrir þær hleðslustöðvar sem ekki koma á vegg.

Svansvottaðar eignir Allar eignirnar eru svansvottaðar af umhverfisstofnun íslands. Til þess að eignir fái svansvottun þurfa byggingaraðilar að standast mjög strangar kröfur á ýmsum sviðum. En það eru gerðar mun meiri kröfur á svansvottaðar eignir heldur en gert er kvöð um í byggingarreglugerð. · Eignirnar þurfa að standast strangari kröfur um hagkvæmni í orkunotkun með áherslu á orkusparnað
· Eignirnar eru hannaðar með sérstöku loftskiptikerfi til að tryggja loftgæði innan íbúðar sem skilar sér einnig í betri líftíma eignanna. · Meiri krafa er gerð á gæðastjórnun á byggingarferlinu en ítarleg handbók er gerð í lok framkvæmdanna · Strangar kröfur eru um innihald þeirra byggingarefna sem notuð eru · Gera þarf birtuútreikninga fyrir hverja og eina íbúð · Ýmsar strangar kröfur eru gerða til þess að lágmarka umhverfisspor bygginganna þegar þær eru reistar
Hagstæðari græn íbúðarlán Græn íbúðarlán eru veitt hjá nokkrum lánastofnunum fyrir þá sem kaupa svansvottaðar eignir. Fyrir slík lán eru ýmis lántökugjöld felld niður og boðið upp á betri lánakjör en á hefðbundnum eignum.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 306
Opið hús:10. mars kl 16:15-16:45
Suðurhella 16 íb. 306
221 Hafnarfjörður
123.1 m2
Fjölbýlishús
413
646 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 302
Opið hús:10. mars kl 16:15-16:45
Suðurhella 16 íb. 302
221 Hafnarfjörður
87.1 m2
Fjölbýlishús
312
768 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 301
Opið hús:10. mars kl 16:15-16:45
Suðurhella 16 íb. 301
221 Hafnarfjörður
122.4 m2
Fjölbýlishús
413
658 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 206
Opið hús:10. mars kl 16:15-16:45
Suðurhella 16 íb. 206
221 Hafnarfjörður
122.4 m2
Fjölbýlishús
413
650 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin