DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:30. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 25. sept. 2026

Logaland 28

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
217.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
162.000.000 kr.
Fermetraverð
745.513 kr./m2
Brunabótamat
97.860.000 kr.
Byggt 1972
Svalir
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20379964
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Tveir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgott og vel skipulagt 217,3 fm raðhús á pöllum við Logaland 28 í Fossvogi. Bílskúr tilheyrir. Stór og björt stofa með arni. Mikil lofthæð. Suðursvalir. Garður til suðurs með timburverönd. Húsið stendur neðan götu og eru bílastæði fyrir framan húsið og bílskúr á móti húsinu í bílskúrslengju. Húsið er laust til afhendingar.

Samkvæmt Fasteignayfirliti er húsið skráð samtals 217,3 fm.  Húsið er skráð 191,7 fm og bílskúrinn 25,6 fm.


Nánari uppl. veita: Sverrir Kristinsson lg. fasteignasali og Magnea S. Sverrisdóttir lg. fasteignasali s. 861 8511 magnea@eignamidlun.is

Nánari lýsing:  
Aðalhæð:
Komið er inn í flísalagða forstofu. Inn af forstofu er flísalalögð snyrting með glugga. Frá forstofu er komið inn í parketlagt hol með skápum. Til hægri úr forstofu er gengið í eldhúsið. Upprunaleg innrétting er í eldhúsi. Gólf er parketlagt. Við hlið eldhúss er parketlögð borðstofa. Frá holi er gengið upp þrjú þrep í stofuna. Mjög rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum. Fallegur arinn er í stofu og mikil lofthæð. Suðursvalir. Stofan er parketlögð að hluta og flísalögð að hluta.

Neðri hæð:
Steyptur teppalagður stigi er á milli hæða. Á neðri hæð eru fjögur parketlögð herbergi, baðherbergi og þvottahús. Inn af hjónaherbergi er lítið fataherbergi. Gengið er út í garð til suðurs úr hjónaherbergi. Við hlið hjónaherbergis eru tvö minni herbergi. Baðherbergið er upprunlegt, með baðkari og sturtu. Norðan megin er mjög rúmgott herbergi. Þvottahús er við hlið forstofu á neðri hæð. Bakinngangur er á neðri hæð hússins en gengið er niður tröppur framan við húsið. 

Framkvæmdir utanhúss: Járn á þaki hússins hefur nýlega verið endurnýjað. Bílskúrshurð er nýleg.

Frábær staðsetning á skjólsælum stað. Stutt í leikskóla, skóla og íþróttasvæði Víkings. Í Fossvogsdalnum er fallegt útivistarsvæði með gönguleiðum.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álftamýri 14
Skoða eignina Álftamýri 14
Álftamýri 14
108 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
312
826 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Langahlíð 9
Skoða eignina Langahlíð 9
Langahlíð 9
105 Reykjavík
125.9 m2
Fjölbýlishús
614
927 þ.kr./m2
116.700.000 kr.
Skoða eignina Síðumúli 39
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Síðumúli 39
Síðumúli 39
108 Reykjavík
73.5 m2
Fjölbýlishús
211
918 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuteigur 23
Opið hús:28. sept. kl 17:30-18:00
Kirkjuteigur.jpg
Skoða eignina Kirkjuteigur 23
Kirkjuteigur 23
105 Reykjavík
165.4 m2
Fjölbýlishús
513
771 þ.kr./m2
127.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin