Miklaborg kynnir: Rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 4.hæð (efstu) við Bláhamra í Grafarvogi. Frábært útsýni yfir borgina. Stutt í helstu þjónustu, leikskóla og út á stofngötur.
Um er að ræða bjarta og fallega 76,1fm. tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð ásamt geymslu á jarðhæð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla, ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Nánari lýsing
Forstofa: Lokuð, flísar á gólfi. Inni í holi er góður fataskápur upp í loft.
Stofa: Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi, útgengt á svalir. Fallegt útsýni yfir borgina úr stofu.
Eldhús: Opið við stofu. Innrétting er hvít og beyki, flísar á milli skápa, gert ráð fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi. Upphengt salerni og nýleg hvít innrétting. Gert er ráð fyrir þvottavél. Gluggi á baðherbergi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi. Fataskápur upp í loft.
Geymsla: Geymsla á jarðhæð.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
110 | 183 | 112,9 | ||
815 | 105,9 | 69,9 | ||
221 | 121,4 | 88,9 | ||
815 | 50,9 | 43,9 | ||
815 | 80,1 | 59,9 | ||
111 | 78 | 54,9 |