Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Skólavörðustíg.Virkilega falleg og björt, þriggja herbergja íbúð ásamt tveimur viðbótarrýmum með mikla möguleika á frábærum stað í miðbænum.
Komið er inn í forstofu með fataskáp í miðju íbúðarinnar.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Þar er upphengt salerni og rúmgóð sturta.
Eldhús og stofa eru samliggjandi og snúa í suður í átt að bakgarðinum. Eldhúsið er með nýrri, snyrtilegri innréttingu, ágætu skápaplássi og fínni vinnuaðstöðu.
Svefnherbergi 1: Mjög rúmgott með harðparketi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með sér inngangi og glugga í átt að bakgarðinum. Þar við hliðina eru tvö önnur rými, þvottahús og verkstæði þar sem hægt væri að innrétta auka tveggja herbergja íbúð eða nýta sem t.d. vinnustofu.
Aftan við húsið er lokaður, skjólgóður bakgarður.
Íbúðin er með parketi og flísum á gólfi. Fjórar nýjar hurðir og karmar, þar af tvær óuppsettar eru í íbúðinni.
Íbúðin hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi og sömu eigendur eru einnig að selja fjögurra herbergja íbúð á næstu hæð hússins. Því er þetta tilvalið tækifæri fyrir fjárfesta.
Þetta er virkilega falleg eign með mikla möguleika sem vert er að skoða. Hún er á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla þjónustu og allt það sem miðborgin hefur upp á að bjóða.
Listi yfir framkvæmdir:
2020 - Eldhús og stofa sameinuð. Ný innrétting og tæki í eldhús. Nýir gluggar í eldhús og stofu. Nýtt harðparket lagt í eldhúsi/ stofu, gangi og svefnherbergi.
2010 - Þakjárn og pappi endurnýjað.
2010 - Gafl hússins sem liggur að 26A múrviðgerður og málaður. Bakhlið hússins einnig múrviðgerð og máluð.
2002 - Gólf í íbúðinni flotað, baðherbergi stækkað og bætt við sturtuklefa.
2002 - Endurnýjaðar frárennslislagnir undir botnplötu ásamt nýjum hitalögnum fyrir nýrra hús kjallara að veggjum.
Kalt vatn fyrir hæðir líka endurnýjað fyrir allt húsið undir kjallaraplötu að veggjum.
2000 - Gluggi og gler endurnýjað að hluta í svefnherbergi.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. fagleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar veitir:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is
www.fastgraf.is