Glæsilegt einbýlishús með stórbrotnu útsýni við Elliðavatn -
Vatnsendablettur 711, 203 Kópavogur Heimili sem sameinar borgarlíf og náttúrufegurð – einstakt tækifæri!
Gylfi Jens og Guðbjörg Helga hjá RE/MAX kynna nútímalegt og fjölskylduvænt einbýlishús að Vatnsendabletti 711, 203 Kópavogi í einkasölu. Hér erum að ræða reisulegt og nútímalegt einbýlishús byggt 2007 á þremur hæðum/pöllum, með tvöföldum bílskúr, stórum svölum með glerhandriði, stórum garði og stórkostlegu útsýni yfir Elliðavatn, Heiðmörk og Bláfjöll.
Í dag eru 4 svefnherbergi en möguleiki er að hafa þau 5 talsins. Möguleiki er á aukaíbúð á jarðhæð eða mjög góðri aðstöðu fyrir au pair / heimilishjálp.
Eingöngu einkasýningar eru í boði á eigninni. Bókið sýningu hjá: Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður með tölvupósti á gylfi@remax.is eða í síma 822 5124
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur með tölvupósti á gudbjorg@remax.is eða í síma 897 7712**
Sæktu þér söluyfirlit með nánari lýsingu strax og milliliðalaust**
**
Skoðaðu og gakktu um húsið í þrívídd með því að smella þig áfram um hana. Það er einnig hægt að nota mælistikuna neðst í vinstra horni**
Við mælum eindregið með að nota tæknina fyrir og eftir skoðun hjá okkur.
*295,4 fm fjölskylduhús með tvöföldum bílskúr
*Óhindrað útsýni af rúmgóðum svölum með glerhandriðum
*Fallegur gasdrifinn arinn aðskilur stofu og borðstofurými
*Aflokaður, viðhaldsléttur garður með veröndum, grasi og steinhellum
*Sérsteyptur heitur pottur, útisturta og skrautlaug
*Sérsmíðaðar innréttingar eftir Hönnu Stínu innanhússhönnuð
*Gólfhiti & KNX Instabus snjallkerfi
*Stórt bílastæði – pláss fyrir allt að 8 bíla á lóð hússins
*Fimm geymslur utandyra og innandyra
Einstakt umhverfi – náttúran fyrir utan dyrnarKyrrlát staðsetning í nálægð við náttúruna með fallegum göngu- og hjólaleiðum, reiðstígum og Elliðavatn.
Stutt ganga í skóla og leikskóla – fullkomið fyrir fjölskyldur
Kríunes hótel með veitingastað og bar í göngufjarlægð
Auðvelt aðgengi að stofnbrautum höfuðborgarsvæðisins
Húsið var byggt 2007 en núverandi eigandi hefur breytt húsinu talsvert að utan og innan og endurhannað innri rými með aðstoð Hönnu Stínu innanhússhönnuðar.
Bókið skoðun og fáið nánari upplýsingar:Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali og lögmaður, netfang: gylfi@remax.is | sími 822 5124
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur netfang: gudbjorg@remax.is | sími 897 7712Láttu ekki þetta einstaka heimili framhjá þér fara!Ertu í söluhugleiðingum? Pantaðu frítt verðmat hérFylgdu okkur á Facebook þar sem við deilum hagnýtum ráðum og upplýsingum um eignir í söluferli hjá okkur:
Gylfi Jens |
Guðbjörg Helga Kíktu á
vefsíðu RE/MAX og sjáðu hvað er á söluskrá