Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Urðarvegur 68 Ísafirði – Töluvert endurnýjað, stórt og fallegt endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Á neðri hæð er forstofa, bílskúr, hol/gangur, tvö svefnherbergi, setustofa, baðherbergi og þvottaherbergi.
Á efri hæð er stór opin stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofa og sólstofa/yfirbyggðar svalir.
Neðri hæð:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, stórum fataskáp, hiti er í gólfum á neðri hæð.
Innangengt er úr forstofu í bílskúr sem er skráður 24,3 m² að stærð.
Á neðri hæðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum.
Þvottaherbergi með innréttingu, vaski og góðu skápaplássi.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting og sturta.
Rúmgott sjónvarps- og fjölskyldurými við stiga upp á efri hæð.
Efri hæð:
Tréstigi liggur á milli hæða.
Stór stofa með stórum gólfsíðum gluggum með rennihurð og útgengi á sólpall og út í garð bakatil.
Eldhúsið er með ágætri eldri viðarinnréttingu, eldavél, gott skápapláss og tengi fyrir uppþvottavél.
Borðstofa með parketi gólfi og þaðan er gengið út í rúmgóða yfirbyggðar svalir, þar er gott og fallegt útsýni yfir fjörðinn.
Tvö svefnherbergi á hæðinni, hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi út á yfirbyggðar svalir, parket á gólfi.
Stórt barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergið er með baðkari, flísar á gólfi og veggjum og snyrtileg innrétting, hiti í gólfi á baði.
Bílskúr er 24,3 m² að stærð, með hvítri bílskúrshurð, rafstýrður hurðaopnari, steypt málað gólf og hillur.
Steypt bílastæði fyrir amk 2 bíla.
Húsið er klætt að utanverðu að mestu.
Ágætur garður sunnan megin við húsið sem og að aftanverðu.
Framkvæmdasaga:
2025-2026: Forstofa opnuð, hitalagnir í gólf á neðri hæð (f. utan bað), nýjar flísar og parket, þvottaherbergi breytt og endurnýjað, innrétting og flísar, nýjar innihurðir.
Nýr gluggi og rennihurð í stofu. Skipt um glugga í tveimur herbergjum, að aftanverðu á neðri og efri hæð. Skipt um gler í svefnherbergi á neðri hæð að framanverðu.
Að utanverðu var þakkantur að aftanverðu endurnýjaður og skipt um klæðningu á kanti og við glugga.
Framkvæmdir fyrri eiganda: Þakið endurnýjað, baðherbergi endurnýjuð og húsið klætt. Svalir yfirbyggðar.