***DOMUSNOVA KYNNIR * GÓÐ 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ***Naustabryggja 15, 110 Reykjavík, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með fallegum afgirtum sólpalli. Birt stærð íbúðar 93,7fm. auk geymslu 6,1fm. eða samtals
birt stærð 99,8fm. Íbúðinni fylgir
stæði í bílageymslu ásamt geymslu í kjallara.
Leigjendur eru í eigninni og eru með 2 mánaða uppsagnarfrest, miðað við mánaðarmót og getur afhending því orðið eigi síðar en að þeim tíma loknum.
Nánari lýsing:Falleg
3ja herbergja rúmgóð íbúð á fyrstu hæð með lyftu í sameign og sólpalli á rólegum stað í Bryggjuhverfinu.
Sér-inngangur um sólpallinn.
Sérafnotaflötur mjög stór og afgirtur með skjólveggjum.
Gengið er um mjög snyrtilega sameign með flísum í anddyri og teppum á stigagöngum. Komið er inn í
forstofu með góðum forstofuskáp.
Barnaherbergið er rúmgott með góðum glugga.
Hjónaherbergið er rúmgott með skáp og góðum glugga
Þvottahús með hillum og flísalagt gólf
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtu, góð innrétting.
Búr/geymsla með hillum og flísalögðu gólfi
Eldhús er mjög bjart og opið inn í stofu. Helluborð og bakarofn ásamt ísskáp og uppþvottavél sem fylgir með í kaupverði. Efri skápar að hluta.
Stofa og borðstofa samliggjandi og útgengt úr stofu á vandaðan afgirtan pall til suðurs.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara ásamt geymslu og aðgengi að sameign, s.s. hjóla- og vagnageymslu.
Eignin er mjög snyrtileg með vandaðri sameign. Stutt úr hverfinu í allar helstu samgönguæðar. Hverfið liggur að sjó með skemmtileg smábátahöfn.
Viðbótarlán: IMIROX ehf. býður lögaðilum viðbótarlán upp í 90% á þessa eign. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á
www.imirox.isNánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / Sími: 899 0720 /
hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.