LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsilegt og vel viðhaldið 5 herbergja 185 fm einbýli á tveimur hæðum með 30,7 fm bílskúr í grónu hverfi í Kópavogi.
Húsið er skráð samkvæmt FMR 171,1 fm, þar af er íbúðarhluti 140,4 fm og bílskúr 30,7 fm, Við bætist óskráður sólskáli/stofa sem er u.þ.b. 13,9 fm. Heildar nýtanlegir fermetrar eignarinnar eru því um það bil 185 fm.
Húsið er staðsett á 391 m2 lóð á þessum vinsæla stað við Álfaheiði. Húsið telur 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, eldhús, borðstofa/stofa, sólskáli, þvottahús og bílskúr.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.
Nánari Lýsing:
Neðri hæð/jarðhæð:
Forstofa: Flísar á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Stórt og gott eldhús með góðri innréttingu og góðu skápaplássi, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél, helluborði og ofn. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Er með handlaug og salerni, sturtuklefi, flísar á gólfi og veggjum, gluggi er í baðherberginu.
Borðsofa/stofa: Er í opnu og fallegu rými með parketi á gólfi.
Sólskáli/stofa: Er um það bil 13,9 fm og er óskráð, útgengi út á sólpall til suðurs og fallegan gróinn garð. flísar á gólfi.
Þvottahús: Er rúmgott með góðri innréttingu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, gluggi í þvottahúsi. Flísar á gólfi.
Efri hæð:
Hjónaherbergi: Rúmgott með með góðum fataskápum, útgengi út á rúmgóðar svalir. Parket plötur á gólfi.
Herbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. parket plötur á gólfi.
Herbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. parket plötur á gólfi.
Herbergi: Með dúk á gólfi.
Baðherbergi: Handlaug með góðu skápaplássi, baðkar með sturtu aðstöðu og salerni. Flísar á gólfi og veggjum ásamt glugga.
Bílskúr: Er með rafmagni og heitu og köldu vatni, gluggar á bílskúr.
Húsið hefur hlotið gott viðhald í gegnum tíðina og vel hefur verið um það gengið, aðeins tveir eigendur á húsinu frá því það var byggt árið 1987. Húsið er á frábærum stað í Kópavogi. Fjölskylduvænt hverfi og mikil veðursæld. Leikvöllur er fyrir börnin, stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og verslun.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.