Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Arngerðareyri lóð 3, þekkt sem "Kastalinn" er gamalt og fallegt steinhús við mynni Ísafjarðar í botni Ísafjarðardjúps. Eignin þarfnast endurbyggingar - Tilboð óskast.
Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara og er skráð 94 m² að stærð, byggingarár er skráð 1928 í fasteignaskrá. Geymsluhús/hlaða við hlið aðalbyggingar er hálfhrunið, skráð stærð 72,3 m². Núverandi eigendur skiptu um glugga í íbúðarhúsinu fyrir um það bil 10 árum síðan og hafa einnig steypt ofan á svalir/þakið. Eignin stendur á 2.500 m² leigulóð, leigusamningur gildir til 14.06.2041. Lóðareigandi hefur forkaupsrétt skv. lóðarleigusamningi. Ekkert rennandi vatn, rafmagn eða frárennsli í húsinu.
Sjá fleiri myndir á Facebookhópnum Arngerðareyri - https://www.facebook.com/profile.php?id=100064844191947
Af wikipedia: " Arngerðareyri er eyðibýli yst í Ísafirði í botni Ísafjarðardjúps á Vestfjörðum. Djúpvegur liggur framhjá húsinu upp á Steingrímsfjarðarheiði. Húsið sem enn stendur er reisulegt steinhús í kastalastíl. Það var upphaflega byggt fyrir kaupfélagsstjórann í Kaupfélagi Nauteyrarhrepps og í húsinu var frá fyrstu tíð rennandi vatn og vatnssalerni. Þar var verslun, "umferðarmiðstöð", símstöð og skóli. Verslun hófst á Arngerðareyri í kringum 1884 í eigu Ásgeirssens kaupmanns á Ísafirði og í umsjón Ásgeirs Guðmundssonar bónda á Arngerðareyri. Djúpbáturinn sigldi frá Arngerðareyri til Ísafjarðar á meðan engir eða illfærir vegir voru um Ísafjarðardjúp. Arngerðareyri fór í eyði 1966"

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
19/07/2011
487.000 kr.
7.100.000 kr.
166.3 m2
42.693 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.