Fasteignaleitin
Opið hús:22. sept. kl 16:00-16:30
Skráð 17. sept. 2024
Deila eign
Deila

Starengi 108

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
176.7 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
791.737 kr./m2
Fasteignamat
120.400.000 kr.
Brunabótamat
85.250.000 kr.
Byggt 1994
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2215815
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
í lagi
Raflagnir
í lagi
Frárennslislagnir
í lagi
Gluggar / Gler
í lagi
Þak
í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Danfoss sér
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Móða er á milli glerja í sólstofu að hluta
***DOMUSNOVA KYNNIR * FALLEGT EINBÝLI Á EINNI HÆÐ***
Mjög gott og vel skipulagt 176,7 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í Starengi 108 í Grafarvogi.
Samkvæmt skráningu HMS er íbúðin 130,4fm.  sólstofa 12,0fm. og bílskúrinn 34,3fm. eða  samtals 176,7fm.
Fyrir framan hús er góð hellulögð bílastæði með snjóbræðslu. Garður er fallegur og gróinn með vönduðum skjólveggjum.  

Skipulag eignar: Anddyri, borðstofa, stofa, sólstofa, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.  Leyfi fyrir gróðurhúsi á lóð.

Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott með ljósum flísum.  Góður fataskápur. 
Eldhús: Gólfhiti með vönduðum flísum, nýlega endurnýjuð falleg hvít háglans innrétting, innfelld uppþvottavél, helluborð.  Lýsing innbyggð í skúffum.  Gluggi á eldhúsi og góður borðkrókur.
Stofa: Parket á gólfi,  opið og bjart rými og útgengt úr stofu í sólstofu.
Borðstofa: Parket á gólfi, útgengt út á aflokaða skjólgóða timburverönd.
Sólstofa með flísum á gólfi.  Gólfhiti.
Baðherbergi: Flísalagt gólf, sturtuklefi, baðkar, innrétting undir og við handlaug.  Góður gluggi á baðherbergi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgott, gott skápapláss.
Herbergi # 2: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Herbergi # 3: Parket á gólfi og góður fataskápur.
Þvottahús: Flísalagt gólf, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, útgengt út í garð.
Bílskúr: 34,3 fm, rúmgóður með góðum gluggum.  Möguleiki að gera innangengt úr húsi og innrétta sem gott íbúðarherbergi
Garður: Skjólsæll garður í rækt, stór nýleg timburverönd með miklum skjólveggjum og innfelldur heitur pottur.  Hluti af skjólveggjum næst húsi er yfirbyggður sem skapar skemmtilega nýtingu.  Lagt rafmagn í veggi fyrir ljós og tengla.
Bílaplan er hellulagt ásamt gangstétt að inngönguhurð með snjóbræðslukerfi.
Húsið hefur fengið mjög gott viðhald og skjólveggir og pallur í garði mjög smekklegt, með lokuðum skápum m.a. fyrir útigrill o.fl.
Húsið er mjög vel staðsett á hornlóð í innsta botnlanga við Starengi og því mjög rúmt á því.
Stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og aðra þjónustu.


Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/12/201648.000.000 kr.59.000.000 kr.176.7 m2333.899 kr.
03/12/200737.420.000 kr.54.500.000 kr.176.7 m2308.432 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
DN ehf
https://domusnova.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Æsuborgir 7
Bílskúr
Opið hús:24. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Æsuborgir 7
Æsuborgir 7
112 Reykjavík
189.5 m2
Raðhús
713
683 þ.kr./m2
129.500.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
133.1 m2
Fjölbýlishús
322
1051 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Sveighús 13
Skoða eignina Sveighús 13
Sveighús 13
112 Reykjavík
208.7 m2
Einbýlishús
615
724 þ.kr./m2
151.000.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B - íb. 502
Bílastæði
Jöfursbás 5B - íb. 502
112 Reykjavík
133.1 m2
Fjölbýlishús
422
1051 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin