RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja útsýnisíbúð á jarðhæð við Kristnibraut í Grafarholti. - Glæsilegt útsýni yfir Reykjavík.
- Um 30 m² pallur.
- Rúmgóðar svalir með möguleika á svalalokun.
- Hiti er í stéttinni allt í kringum húsið og er húsið steinað að mestum hluta.
- Grunnskóli og leikskóli í göngufæri.
- Mikið af góðum gönguleiðum.
- Búið er að fara í múrviðgerðir, mála slétta fleti hússins ásamt gluggum, þakjárn og þakkant og olíubera útihurðir. Einnig var er búin að sílanbera steinaða fleti.
- Þetta er einstaklega skemmtileg eign sem vert er að skoða.
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉRNánari lýsing:Inngangur er sameiginlegur en alls eru átta íbúðir í stigaganginum.
Komið er inn í
forstofu með eikarfataskáp og skóhillum. Við tekur herbergjagangur.
Svefnherbergin eru tvö talsins, rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp og barnaherbergi.
Útgengt er á
timburverönd sem snýr í suður frá hjónaherbergi. Veröndin er með háum skjólveggjum með lýsingu og er hún um 30 m².
Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu, háfi, keramik helluborði, innbyggðri uppþvottavél og borðkrók. Öll tækin eru frá AEG.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi en útgengt er á svalir sem snúa í suður frá stofu.
Þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi, eikarskáp, vinnuborði með skolvaski og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, vaskinnréttingu, baðkari með sturtu og handklæðaofni.
Íbúðin er með gegheilu eikarparketi á gólfi að undanskildu baðherbergi og þvottaherbergi.
Sérgeymsla fylgir (9,7 fm) ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Virkilega falleg eign með útsýni, verönd og svölum í Grafarholti í Reykjavík.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is