Gylfi Jens og Guðbjörg Helga löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Goðaheima 16, 104 Reykjavík.Rúmgóð og björt 4ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á frábærum stað við Laugardalinn
Íbúðin er í afar góðu fjórbýllishúsi á vinsælum stað í Vogunum. Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald.
Heildarstærð eignarinnar er skráð 103,4 fm, þar af geymsla 0,7 fm sem er staðsett í sameign hússins á sömu hæð.
**SÆKTU SÖLUYFIRLIT SJÁLFVIRKT MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR** NÚVERANDI SKIPULAG EIGNAR:Forstofa, gangur, stofa, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymsla
NÁNARI LÝSING:Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan forstofu og baðherbergi þar sem eru flísar og eldhús sem er flotað og lakkað.
Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu um sérinngang.
Gangur: Rúmgóður gangur sem tengir rými íbúðarinnar. Stór fataskápur. Útgengt af gangi í sameiginlegt þvottahús, þar sem séreignargeymsla er staðsett.
Stofa: Rúmgóð og björt með útgengi út á hellulagða verönd til suðurs.
Eldhús: Endurnýjað 2023. Falleg innrétting með viðarborðplötum. Flísalagt að hluta með Marzzi flísum. 90 cm SMEG gaseldavél og háfur. Combi ofn og uppþvottavél. Borðkrókur. Lagður hefur verið gólfhiti í eldhúsrými.
Svefnherbergi I: Rúmgott með glugga til vesturs. Fataskápur.
Svenfnherbergi II: Rúmgott með glugga til suðurs.
Svefnherbergi III: Rúmgott með glugga til suðurs. Fataskápur
Baðherbergi: Endurnýjað 2023. Flísalagt með Marazzi flísum. Viðarinnrétting með vaski. Baðkar með sturtuaðstöðu. Upphengt salerni. Opnanlegur gluggi til austurs.
Geymsla: Lítil geymsla í sameignarrými á sömu hæð.
Lóðin: Sameiginlegur gróinn garður. Hellulögð verönd til suðurs. Hellulagt fyrir framan hús og steypt sorptunnuskýli.
Sameiginlegt þvottahús: Á sömu hæð þar sem hver er með tengi fyrir eigin vél.
Framkvæmdasaga í eignatíð núverandi eiganda;2023: Eldhús endurnýjað. Gólfhiti lagður í rýmið og ný rafmagnstafla fyrir eldhús.
2023: Baðherbergi endurnýjað.
2022: Hellulagt fyrir framan hús. Snjóbræðslulagnir lagðar en ótengdar.
2020 - 2023: Skipt um glugga í öllu húsinu fyrir utan sameignarhluta.
2021: Skólplagnir og drenlagnir endurnýjaðar.
2018: Húsið sílanborið
2016: Skipt um þakdúk og rennur
Um er að ræða skemmtilega eign á frábærum stað í Vogunum, miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla þjónustu. Afar stutt er í leikskóla, skóla og menntaskóla.
Allar nánari upplýsingar veita: Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður í netfangi: gylfi@remax.is og s. 822 5124
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfangi: gudbjorg@remax.is og s. 897-7712