Fasteignasalan Bær kynnir: Smyrilshlíð 14 er 5 hæða lyftuhús með 14 íbúðum, auk kjallara með sérgeymslum og bílastæðum og bílskúrum þar sem við á. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Innangengt er úr bílageymslu inn í stigagang. Á jarðhæð er aðalinngangur hússins, póstkassar og mynddyrasímar eru í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í stigahús að lyftu ásamt sérgeymslum íbúða. Húsið afhendist fullbúið að utan, ásamt lóð og bílastæði. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa og einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate), pallar og gras er á þakgörðum en grjót á öðrum svæðum. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið úr álprófílum og gleri og svalagólf með viðarstiklum. Húsið er fulleinangrað að utan og klætt með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri, málaðir að innan en áklæddir að utan. Bílastæði eru malbikuð og hitalögn er í gagnstéttum. Sorpgeymslur eru niðurfelldar í gangstéttar við götu.Íbúð 0431 er 4 herbergja 131,4 fm. ásamt 26,4 fm. bílskúr alls 157,8 fm. Staðsett á fjórðu hæð með svölum í suður og 46,9 fm. sér þakgarði í suð-vestur. Bílskúr (rými merkt 056) er 26,4 fm að stærð. Sér bílastæði merkt B106.Komið er inn frá sameign í rúmgóða forstofu með fataskáp. Eldhúsinnrétting er Nobila frá GKS, í skápum eru útdrög og hillur eftir því sem við á. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG; kæliskápur með frysti, uppþvottavél, spanhelluborð, veggofn og örbylgjuofn. Eyjuháfur yfir helluborði. Eldhúsvaskur, stál eða svartur eftir því sem við á, og blöndunartæki í sama lit. Í baðherbergi er upphengt salerni með hæglokandi setu. Innréttingar eru hvítar, skúffur undir handlaug. Kringlóttur spegill með baklýsingu er yfir handlaug. Handklæðaofn, sturta með föstu gleri. Veggir með ljósum flísum. Þvottahús er innan íbúðar með stálvaski og fráleggsborði. Hvítir PAX fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Gólefni íbúðar eru ljóst harðparket, en gegnheilar flísar á votrýmum. Hurðir og karmar eru annað harðplasteikarhurðir eða hvítar, sólbekkir eru þar sem við á, hvítir og plastlagðir. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara. Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Í bílastæðahúsi er uppsett grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. Ljósleiðari er dreginn í tengikassa hverrar íbúðar.
Eignin er til afhendingar í júní. Ljósmyndir eru af sýningaríbúð í Fálkahlíð 3.
Heimasíða hlidarendi.isNánari upplýsingar gefa Guðlaug Halldórsdóttir í síma 512 3400 eða á netfangið 102@fasteignasalan.is og
Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangið 102@fasteignasalan.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt (en þó breytilegt) 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.