Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Grænalaut 2, í fjölskylduvænu Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ. Íbúðin er 113 m² að stærð að meðtalinni 4,3 m² sérgeymslu á jarðhæð. Stórar yfirbyggðar svalir. Húsið er vel staðsett í Hlíðarhverfi í Keflavík, þar sem leiksóli er handan við götuna, grunnskóli og íþróttastarfsemi í um 10 mín göngufæri og stutt í alla helstu þjónustu.
* Stórar yfirbyggðar svalir, 19,9 fm.
* Rúmgott þvottahús innan íbúðar.
* Sérmerkt bílastæði.Forstofa: Flísar á gólfi og góðir skápar.
Stofa: Stór og rúmgóð með parket á gólfi og útgengt á stórar lokaðar svalir.
Eldhús: Parketlagt, með vönduðri innréttingu og góðum tækjum, þar á meðal ofni, helluborði, háfi, eldunareyju, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin: Þrjú mjög rúmgóð herbergi, öll með skápum og parketi á gólfi.
Þvottahús: Innan íbúðar og er flísalagt með hvítri innréttingu undir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaskur og gott skápapláss.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluti veggja. Hvít innrétting, stór flísalagður sturtuklefi aðskilinn með gleri, upphengt salerni og handklæðaofn.
Sérgeymsla á 1. hæð í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagna geymslu.
Merkt bílastæði fylgir eigninni.Göngufæri við Holtaskóla og Fjölbrautaskóla Suðurnesja, íþróttamannvirki og verslunarkjarna.
Eignin er á frábærum stað og vert er að skoða hana!Nánari upplýsingar veita:Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 8233022 eða evert@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.