DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 27. nóv. 2026

Edenmörk 5

FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
80 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
723.750 kr./m2
Brunabótamat
50.800.000 kr.
Byggt 2022
Svalir
Pallur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
25140464
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Eignamiðlun kynnir:

Vel skipulögð og snyrtileg 80 fm fjögurra herbergja íbúð í nýlegu lyftuhúsi staðsett í hjarta Hveragerðis. Eignin er á svokölluðum Edenreit, miðsvæðis í Hveragerði. Lóð og bílastæði frágengin og snyrtileg. Stutt í skóla, verslun og almenna þjónustu.

Fasteignamat 2027 er: 58.750.000kr

Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsinnréttingu og stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr. 56.550.000- Eignin er laus við kaupsamning.

Nánari lýsing:

Gengið er beint um sérinngang, en einnig er lyfta í húsinu utanáliggjandi sem tengist svalagangi og kjallara þar sem eru geymslur.
Forstofan er opin og björt með flísum á gólfi og leiðir þig inní aðalrými íbúðarinnar.
Í opnu rými er stofa, borðstofa og eldhús með útgengi á hellulagða verönd.
Eldhúsið er sérsmíðað með vönduðum heimilistækjum frá Ormsson, AEG fjölvirkur blástursofn, 60 cm helluborð með fjórum spansuðuhellum.  Samsung uppþvottavél og kæliskápur með frysti í innréttingu.
Þrjú góð svefnherbergi eru í íbúðinni, hjónaherbergi sem er bjart og rúmgott með góðum skápum ásamt tveimur barnaherbergjum með skápum. Möguleiki er að stækka stofuna með því að fórna öðru herberginu.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og nettri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og stórri og  sturtu. Vélrænt útsog. Vegghengt salerni, handlaug með einnar handar GROHE blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi.
Íbúðinni fylgir 4,8  geymsla í kjallara sem er inní fermetratölu eignar.
Gólfefni íbúðar eru parket og flísar.

Við húsið er utanáliggjandi lyfta sem tengist svalagangi sem er við húsið frá kjallara og uppúr.
Húsið er byggt árið 2022 og er aðalverktaki Jáverk. Edenmörk 5 er þriggja hæða fjölbýli ásamt geymslum og hjóla/vagnageymslu í kjallara. Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur með litlum gróðurhúsum sem íbúar geta fengið að njóta góðs af.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álalækur 6
Skoða eignina Álalækur 6
Álalækur 6
800 Selfoss
102,8 m2
Fjölbýlishús
312
583 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Pósthússtræti 3
Bílastæði
Hleðslustöð
Pósthússtræti 3
230 Reykjanesbær
101,6 m2
Fjölbýlishús
312
737 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Laugarbrekka 19
Skoða eignina Laugarbrekka 19
Laugarbrekka 19
640 Húsavík
102,8 m2
Fjölbýlishús
32
Fasteignamat 33.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hringhamar 33 íb. 401
Hringhamar 33 íb. 401
221 Hafnarfjörður
83 m2
Fjölbýlishús
312
831 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin