Glæsilegt og mjög vel skipulagt parhús á einni hæð með sambyggðum bílskúr í byggingu í Hagabyggð í Hörgársveit. Eignin er samtals 181,2 fm. þar af er bílskúr 40,5 og ótalið geymsluloft sem er yfir hluta íbúðar aðgengilegt úr bílskúr.
Eignin selst á núverandi byggingarstigi, en búið er að reisa húsið og ganga frá öllum lögnum og veggir eru klárir fyrir gips. Að utan verður búið að klæða húsið en lóð er grófjöfnuð.
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **
Íbúðin skiptist í anddyri, þvottahús, hol, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, fataherbergi og eldhús og stofu í opnu rými.
Komið er inn í anddyri og á vinstri hönd er þvottahús sem er staðsett milli íbúðarhluta og bílskúrs. Hol er yfir 17 fm. og gert ráð fyrir að geta verið með aðstöðu fyrir sjónvarp þar. Svefnherbergi eru þrjú, tvö barnaherbergi og ein hjónasvíta. Í hjónasvítu er gert ráð fyrir fataherbergi fyrir framan baðherbergi. Hægt verður að komast út úr baðherbergi á verönd þar sem gert er ráð fyrir með lagnaleið, heitum potti. Aðalbaðherbergi er svo inn af holi, þar er einnig hurð með útgengt út á verönd. Stofa og eldhús er í opnu rými. Úr stofu er útgengt um rennihurð á verönd til vesturs. Gert er ráð fyrir eyju við eldhúsinnréttingu en myndir sem fylgja auglýsingu er aðeins til hliðsjónar.
Í bílskúr er rafdrifin innkeyrsluhurð sem og inngönguhurð. Þá er áður nefnd geymsla/hilla fyrir ofan hluta bílskúrs og íbúðarhluta.
Annað: -CLT einingar eru keyptar frá Element -Lagt er fyrir KNX hússtjórnunarkerfi en einnig hægt að hafa hefðbundið -PVC dúkur á þaki -Klæðning er Stac Bond 4 mm 9005 álplata -Timburklæðning er Lunawood og litur á gluggum er ral 9005
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar). Hönnuður: Valbjörn Vilhjálmsson M2Hús ehf. Framkvæmdaaðili: DS pípulagnir ehf. Afhending: Laus við kaupsamning Ath.: Tölvuteiknaðar myndir í auglýsingu eru aðeins til viðmiðunar en endurspegla ekki endilega nákvæmt efnis- eða litaval eða aðra eiginleika framar lýsingu.
Úr byggingarlýsingu: Lóð og aðkoma: Tvö steypt bílastæði við bílgeymslu beggja íbúða. Þriggja tunnu sorpskýli við bílastæði. Gera skal ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við bílastæði. Steypt verönd vestan við hús með snjóbræðslu í gönguleið að heitum potti. Timbur skjólveggir á lóðarmörkum vestan við hús. Á lóðinni er lávaxinn grjágróður sem heldur sér eins og hægt er.
Sökklar og Botnplata: Sökklar og gólfplata steinsteypt. Sökklar steinsteyptir með 67mm plasteinangrun að innan og utan (plastkubbar). Múrhúðun á plasteinangrun minnst 200mm niður fyrir yfirborð jarðvegs. Gólfplata steinsteypt á 100mm plasteinangrun (24kn/m³).
Út- og innveggir: Burðarvirki útveggja og flestra innveggja úr krosslímdum timbureiningum (clt). Útveggir verði einangraðir að utan með 100mm þéttull, og klæddir með dökkri álklæðningu. Á valda yfirbyggða veggfleti komi nótuð og bandsöguð timburklæðning. Allar klæðningar komi á minnst 30mm loftræst lektubil. Gufuopinn öndunardúkur komi bæði utan á clt og einangrun. Hærri rakamótstaða í dúknum sem komi utan á clt. Að innan verði clt einingar klæddar með einu lagi af 12mm gifsplötum (kl.flokkur 1). Wedi plötur, votrýmiskvoða og flísar á veggfleti í votrými. Léttir innveggir úr blikkgrind með einu lagi af 12mm osb plötum og 12mm gifsplötum (kl. flokkur 1) beggja vegna. Allir veggir heilsparslaðir og málaðir.
Þök: Þök einangruð að utan með 150mm+25mm harðpressaðri þéttull. Vatnsverndarlag úr asfalt þakdúk í flokki T B(roof) (T2). Rakavarnarlag úr asfalt þakpappa komi undir einangrun (rakamótstaða meiri en í vatnsverndarlagi). Innbyggð þakrenna á langhliðum, mótuð með dokaplötum og klædd asfalt þakdúk. Ekki er talin þörf á snjógildrum vegna lítils þakhalla og gerð þakklæðningar. Loft: Hljóðdúkur komi í öll rými íbúða nema í þvottahúsum og baðherbergjum, þar sem klætt verður með einu lagi af gifsi. Í bílgeymslur verði klætt með einu lagi af gifsplötum (kl.flokki 1). Á þakeiningar (ofan hljóðdúks) verði sett minnst 25mm þéttull á loftræst bil.
Gluggar og hurðir: Gluggar úr timbri með álkápu að utan. Litur álkápu verði dökkur. Innihurðir verði hvítar yfirfelldar timburhurðir. Bréfarifa min 25x260mm komi í hliðarglugga við útihurð í hæð 100cm frá gólfi. Hljóðvist: Byggingin er í hljóðvistaflokki C. Lofthljóðeinangrun skv. ÍST 45 2016.
Lagnir: Heimtaugar Norðurorku komi í húsið. Inntök, lagnagrind og rafmagnstafla staðsett í bílgeymslu. Lagnir lagðar í og undir gólfplötu að notarýmum. Upphitun verði með gólfhitalögnum. Framrás heits neysluvatns við inntak skal ekki vera lægra en 60°C. Varmaskiptir komi á neysluvatn til að koma í veg fyrir að hiti við töppunarstaði fari yfir 65°C. Frárennsli og grávatni tengist tvöföldu kerfi út við götu sem leitt er í rotþró og síubeð sameiginlegt fyrir svæðið. Staðsetning skv. deiliskipulagi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna). 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.