Fasteignaleitin
Opið hús:08. sept. kl 12:00-12:30
Skráð 6. sept. 2024
Deila eign
Deila

Jöfursbás 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
99.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
907.164 kr./m2
Fasteignamat
33.400.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2530375
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5c, Reykjavík -  íbúð 101 m2 er 3. herbergja íbúð á jarðhæð með óheftu útsýni til sjávar, þar af geymsla 9,6fm. (merkt 0001).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B019 í lokuðu bílahúsi.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með fallegu eldhúsi með eyju, stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahúsi, og tveimur svefnherbergjum.  Gólfhiti í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Sér-afnotaflötur til austurs út frá stofu.  Óheft útsýni til sjávar frá stofu, eldhúsi og svefnherbergjum þar sem íbúðin er staðsett við strandlengjuna. Íbúðirnar eru með aukinni lofthæð allt að 280cm.


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa 
með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts
Eldhús með eyju og góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum og út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi og útgengt á sér-afnotaflöt íbúðar.
Stofa og borðstofa með gólfsíðum útsýnisgluggum og útgeng á sér-afnotaflöt til austurs.  
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  
Þvottahús innan íbúðar með flísalögðu gólfi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskápum sem ná til lofts.   Gólfsíður gluggi með sjávarsýn.
Hjónaherbergi mjög rúmgott með fataskápum sem ná til lofts.   Gólfsíður gluggi með sjávarsýn.
Barnaherbergi með góðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Stæði í vönduðu lokuðu bílahúsi fylgir íbúðinni
Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar



Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 


Íbúðirnar í húsinu eru samtals 25 talsins, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 60,0 fm-137,2 m2  Næg stæði fyrir utan hús

// VILDARKORT LINDAR //
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.


Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2530375
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
21
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Lind fasteignasala ehf
https://www.fastlind.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Opið hús:08. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
97.6 m2
Fjölbýlishús
312
926 þ.kr./m2
90.400.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Opið hús:08. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
924 þ.kr./m2
90.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5
Bílastæði
Opið hús:08. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Jöfursbás 5
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
102.1 m2
Fjölbýlishús
312
881 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5C - íb. 201
Bílastæði
Jöfursbás 5C - íb. 201
112 Reykjavík
99.1 m2
Fjölbýlishús
312
907 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin