DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 27. feb. 2026

Árblik 1

EinbýlishúsAusturland/Neskaupstaður-740
129.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
538.521 kr./m2
Fasteignamat
52.050.000 kr.
Brunabótamat
64.920.000 kr.
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2168927
Landnúmer
155323
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjaðar
Raflagnir
endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
nýlega myndaðar, í lagi
Gluggar / Gler
endurnýjað
Þak
endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir mjög mikið endurnýjað og fallegt fjögurra herbergja einbýli á einni hæð auk bílskúrs við Árblik 1 á Norðfirði. Frábær staðsetning og geggjað útsýni. Húsið er skráð 108,8fm og bílskúr 21fm, samtals 129,8fm samkv. HMS. Húsið skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, geymslu og bílskúr.

Aðalrými:
Anddyri er flísalagt. Stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott opið rými með gluggum til suðurs og vesturs. Útgengt er á stóran sólpall frá stofu með svakalegu útsýni. Eldhús er með góðri innréttingu, nægu skápaplássi, borðplötu frá Brúnás, innbyggðum tækjum og áfastri eyju, helstu tæki hafa verið endurnýjuð á síðustu árum.
Svefnherbergi:
Húsið er með þremur svefnherbergjum, öll rúmgóð með parketi á gólfi. Tvö herbergjanna eru með innbyggðum fataskápum. Innihurðir frá Birgisson með felliþröskuldum.
Bað- og þvottahús:
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með nýlegum blöndunartækjum, sturtuklefi, gólfhiti, gluggi. Nýtt vegghengt salerni, flísar og efni til frekari endurbóta getur fylgt með. Þvottahúsið er rúmgott og var tekið algerlega í gegn árið 2023 með nýrri innréttingu og flísum. Auk þess er sér geymsla og fataherbergi sem hægt er að breyta aftur í lítið baðherbergi ef vilji er til.
Innviðir og tæknikerfi:
Mikið hefur verið endurnýjað í húsinu undanfarin ár. Vatnslagnir og hitakútur nýlega endurnýjað, skólplagnir úr plasti í góðu ástandi. Rafmagn hefur verið yfirfarið, nýir rafmagnsofnar settir upp og hluta rafmagnstöflu skipt út. Öll gólfefni, parket og flísar, gluggar og hurðir er endurnýjað. Hluti loftaklæðningar hefur einnig verið endurnýjaður.
Bílskúr:
Bílskúr hefur verið lagfærður að innan og er með nýlegri aksturshurð. Malbikað plan er fyrir framan húsið og bílskúr.
Lóð og utanhúss:
Húsið var einangrað að utan og klætt með báruálsklæðningu árið 2025. Á sama tíma var reistur um 100 fermetra sólpallur. Eftir stendur að ljúka skjólveggjum og girðingu við lóðamörk (mögulegt að timburefni fylgi). Nýjar þakrennur hafa verið settar upp og þakið yfirfarið, Aluzinc á þaki var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Steyptir hafa verið staurar fyrir girðingu og viðbótarpall aftan við bílskúr. Nýtt ruslatunnuskýli stendur við viðarklæddan steyptan vegg sem skilur það frá bílskúrnum. Stórt grjótbeð prýðir svæðið .
Endurbætur:
2025 – Klæðning, sólpallur, rennur, fataskápur í barnaherbergi. Þökulögn, staurar fyrir girðingu og pall, loftaplötur að hluta og yfirferð á þaki.
2024 – Endurbætur á eldhúsi, ný borðplata, tæki og innrétting. Ný aðalútidyrahurð og þrír gluggar. Endurnýjun á parketi, innihurðum og rafmagni. Lóð mótuð og drenlögn sett. Ruslatunnuskýli og klæddur veggur byggður við bílastæði.
2023 – Þvottahús endurnýjað og flísalagt ásamt anddyri.
2022 – Nýjar vatnslagnir, hitakútur og blöndunartæki á baðherbergi.

Allir rafmagnsofnar hafa verið endurnýjaðir á undanförnum árum.

Árblik 1 er gott fjölskylduhús sem býður uppá mikla möguleika. Stutt er í góðar gönguleiðir og útivistarsvæði, leikskóla, grunnskóla, verkmenntaskóla, íþróttahús og sjúkrahúsi.
Frábærlega staðsett hús í bænum. Það er einnig svakalegt útsýni frá húsinu bæði úr suðurgluggunum og af palli.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/11/202229.200.000 kr.44.000.000 kr.129.8 m2338.983 kr.
11/01/200815.205.000 kr.18.000.000 kr.129.8 m2138.674 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
21 m2
Fasteignanúmer
2168927
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.970.000 kr.

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 37
Bílastæði
Skoða eignina Hringhamar 37
Hringhamar 37
221 Hafnarfjörður
90.6 m2
Fjölbýlishús
312
827 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
Bílastæði
Hringhamar 35, íb. 307 Hlutd.lán
221 Hafnarfjörður
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
808 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina HRAUNBRAUT 43
Bílskúr
Opið hús:23. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina HRAUNBRAUT 43
Hraunbraut 43
805 Selfoss
200.4 m2
Einbýlishús
423
544 þ.kr./m2
109.000.000 kr.
Skoða eignina Hátún 4
Opið hús:24. mars kl 17:00-17:30
DJI_0726.JPG
Skoða eignina Hátún 4
Hátún 4
105 Reykjavík
77.3 m2
Fjölbýlishús
3
840 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin