DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:26. júlí kl 18:00-18:30
Skráð 23. júlí 2026

Holtagerði 20

HæðHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
143.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
111.900.000 kr.
Fermetraverð
781.971 kr./m2
Fasteignamat
97.100.000 kr.
Brunabótamat
65.460.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Jarðhæð af 2
Geymsla 7.8m2
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2062434
Landnúmer
114880
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
*Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Nýtt á skrá! Holtagerði 20 Kópavogi (Kársnesi) - Afar falleg neðri sérhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi, 4 svefnh., þvottaherbergi og bílskúr!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða 4-5 herbergja (4 svefnherbergi eitt þó í minni kantinum) 143,1 fermetra neðri sérhæð með sérinngangi, þar af 22,4 fermetra bílskúr, á þessum frábæra fjölskyldustað á Kársnesi í Kópavogi. Verið er að klára múrviðgerðir á húsinu.

Yfirstandandi múrviðgerðir eru á húsinu sem seljandi ber kostnað af. Þá var þak á bílskúrum endurnýjað fyrir u.þ.b. 5-6 árum síðan. Auk þess voru gólfefni íbúðar (harðparket) endurnýjað fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda þá var þak nýlega endurnýjað fyrir 10-12 árum síðan. 

Eignin skiptist í forstofu, rúmgóða stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr. Mjög gott skipulag og stórir gluggar í stofu til suðurs sem hleypa inn mikilli birtu. Góður 22,4 fermetra bílskúr með stæðum fyrir framan. Rúmgóð geymsla sem er 7,8 fermetrar að stærð.

Lýsing eignar:

Forstofa: Með flísum á gólfi.
Stofa: Með nýlegu harðparketi. Stofa er rúmgóð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gluggar til suðurs.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2017 á afar smekklegan máta. Hvítar innréttingar og harðparket á gólfi. Siemens stál bakaraofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggar til vesturs og norðurs, flísar á milli skápa og borðkrókur.
Þvottaherbergi: Með flotuðu gólfi, tenglum fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð, vaskur og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I/skrifstofa: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs. 
Svefngangur: Með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Með harðparketi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi, skápum og glugga til norðurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi og skápum. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi: Var endurnýjað árið 2017. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, handklæðaofn og upphengt salerni. Gluggi til suðurs.
Geymsla I: Er 7,8 fermetrar að stærð. Aðgengi að geymslu frá baklóð. Málað gólf, hillur og gluggi.

Bílskúr: Er 22,4 fermetrar, með rafmagnsopnun á bílskúrshurð, heitu/köldu vatni, rafmagni og glugga til vesturs. 

Frábær staðsetning á fjölskylduvænum stað við Holtagerði á Kársnesi Kópavogi. Leikskóli, grunnskóli og sundlaug í göngufjarlægð. Fallegar göngu- og hjólaleiðir við fallega náttúruna allt í kring. Matvöruverslun, bókasafn og baðlón í næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
02/04/202054.300.000 kr.66.200.000 kr.143.1 m2462.613 kr.
12/10/201737.100.000 kr.54.000.000 kr.143.1 m2377.358 kr.
22/12/201123.500.000 kr.29.000.000 kr.143.1 m2202.655 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1971
22.4 m2
Fasteignanúmer
2062434
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.180.000 kr.
Byggt 1971
7.8 m2
Fasteignanúmer
2062434
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.730.000 kr.

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Naustavör 9
Opið hús:26. júlí kl 15:30-15:45
Skoða eignina Naustavör 9
Naustavör 9
200 Kópavogur
129.2 m2
Fjölbýlishús
413
928 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Meistaravellir 15
Bílskúr
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Meistaravellir 15
107 Reykjavík
154.7 m2
Fjölbýlishús
514
775 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Dalaland 5
Dalaland 5.jpg
Skoða eignina Dalaland 5
Dalaland 5
108 Reykjavík
84.4 m2
Fjölbýlishús
413
864 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Gefjunarbrunnur 15
Efsta hæð
Gefjunarbrunnur .jpg
Gefjunarbrunnur 15
113 Reykjavík
135.1 m2
Hæð
513
833 þ.kr./m2
112.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin