Hrafnkell á Lind kynnir mikið endurnýjaða og fallega útsýnisíbúð við smábátahöfnina við Bryggjuhverfið í Reykjavík.
Eignin er fjögurra til fimm herbergja íbúð á 1. hæð í lyftuhúsi.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð sl. 3 ár og er falleg innfelld lýsing í eigninni.- 3-4 svefnherbergi
- 2 baðherbergi
- 17.5 fm svalir með einstöku útsýni
Einstök staðsetning og útsýni!
Nánari upplýsingar veitir: Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.isNánari lýsing:Gengið er inn í
anddyri.
Stofa og eldhús mynda gott alrými með fallegu útsýni. Opinn hringstigi er í stofu niður í herbergi í kjallara, það er rúmgott með glugga og opnanlegu fagi. Úr stofunni er gengt út á
17.5 fm svalir sem snúa að höfninni og gefa skemmtilega nálægð við sjóinn.
Þrjú svefnherbergi eru á efri hæðinni. Eldhúsið er með parket á gólfi og fallegri innréttingu með miklu skápaplássi og vinnurrými, opið inn í stofuna og borðstofuna. Góð eyja sem hægt er að sitja við.
Stofan og
borðstofan mynda opið rými með fallegu sjávarútsýni.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallagri innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengd salerni, handklæðaofn
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi, góðum fataskápum og stórum glugga sem snýr til sjávar.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi, fataskáp og útgengt á svalirnar.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi, fataskáp og glugga með útsýni til sjávar.
Gengið niður hringstiga í
herbergi IV/geymslu á neðri hæð/kjallara. (Skráð: Herb/geymsla í FMR).
Gestasnyrting er flísalögð með upphengdu salerni og vask.
Þvottahúsið er í sameign í kjallara. (Möguleiki að koma fyrir þvottaaðstöðu innan íbúðar).
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Góðar tengingar eru við göngu- og hjólastíga niður í miðborgina, yfir í Grafarvog og upp í Grafarholt.Grunnskóli er Hamraskóli og leiksskóli. Tenging við Elliðarárdalinn sem er eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Elliðaárdalur er vinsæl samgönguæð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og tengjast göngu- og hjólastógar við Fossvogsdal og Heiðmörg sem og nálæg íbúðahverfi.*ATH meðfylgjandi teikningar endurspegla núverandi skipulag ekki að fullu.Naustabryggju 54, íbúð merkt nr. 103.
Naustabryggja 54, 110 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 224-7463 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Naustabryggja 54 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 224-7463, birt stærð 115.9 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.