** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð með sérinngangi og sólpalli á jarðhæð í fjórbýlishúsi við Álmholt 17 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, og þvottahús/geymslu. Um er að ræða eign á frábærum stað innst í botnlanga. Timburverönd í vesturátt og stór sameiginlegur garður. Endurbætur samkvæmt seljanda. Árið 2021 var skipt um eldhúsinnréttingu og eldhústæki, mest allt rafmagn yfirfarið og sett ný rafmagnstafla í eldhúsið. Að utan var árið 2017 skipt um þakjárn og síðar var bætt öndun (loftunargöt sett). Árið 2020 var húsið málað að utan. Rennur yfirfarðar árið 2024
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax. Nánari lýsing:Forstofa með fatahengi og vínelparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa er með vínilparketi á gólfi og útgengi út á sólpall og garð. Mögulegt væri að bæta við auka herbergi í borðstofunni þar sem svalahurðin er.
Eldhúsið er opið inn í stofuna með fallegri hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, ofn, örbylgjuofn og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Hjónaherbergið er rúmgott með fataskápum og vínilparketi á gólfi.
Svefnherbergi er með vínilparketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt og með baðkari með sturtuaðstöðu, vegghengdu salerni og innréttingu. Hiti er í gólfi á baðherbergi.
Þvottahús/geymsla er innan íbúðar með hillum og dúk á gólfi.
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 59.700.000,-
Verð kr. 69.900.000,-