DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 20. nóv. 2026

Hraunhella 3

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
217.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
574.517 kr./m2
Fasteignamat
124.750.000 kr.
Brunabótamat
133.650.000 kr.
Mynd af Andrea Ósk Harradóttir
Andrea Ósk Harradóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2018
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Hleðslustöð
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2340758
Landnúmer
213169
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt.
Raflagnir
Upprunalegt.
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
Upprunalegt.
Þak
Uppunalegt.
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Rúmgóður pallur
Upphitun
Gólfhiti. Hitaveita í bílskúr
Inngangur
Sérinngangur
Glæsilegt og vandað 217,4 m² einbýlishús á einni hæð með stórri eignarlóð og glæsilegu útisvæði á Selfossi.
  • Fjögur svefnherbergi og rúmgott alrými
  • 973 m² eignarlóð
  • Um 130 m² suðurpallur með heitum potti
  • 9 m² saunahús og 15 m² upphitað garðhús
Birt stærð eignar er 217,4 m² samkv. HMS.

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Eignin skiptist í forstofu, fjögur svefnherbergi, gestasalerni, stofu og eldhús í opnu alrými, sjónvarpshol, herbergjagang, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Auk þess eru geymslurými, saunahús og garðhús.

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Rúmgóð og snyrtileg forstofa með stórum fataskápum sem bjóða upp á gott geymslupláss. Vínylparket á gólfi.
Forstofuherbergi: Vel skipulagt herbergi með vínylparketi á gólfi og góðri tengiaðstöðu.
Gestasalerni: Vel útbúið með upphengdu salerni, handlaug og sturtuklefa. Blöndunartæki frá Grohe.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa sem myndar glæsilegt alrými með eldhúsi. Upptekin lofthæð, innfelld LED-lýsing og hljóðdempandi plötur setja svip sinn á rýmið. Vínylparket á gólfi og dimmerar á lýsingu. Stór rennihurð opnast út á rúmgóðan suðurpall og skapar góða tengingu milli inni- og útisvæðis.
Eldhús: Glæsilegt og vel búið eldhús með stórri innréttingu, góðu vinnuplássi og rúmgóðri eldhúseyju með sæti fyrir barstóla. Í eyjunni er vínkælir og hljóðdempandi plötur. Eldhúsið er búið innbyggðri uppþvottavél, örbylgjuofni og bakaraofni í vinnuhæð ásamt rými fyrir tvöfaldan ísskáp. Innfelldar Evoline-innstungur í innréttingu og blöndunartæki frá Grohe. Upptekin lofthæð og innfelld lýsing tengja eldhúsið við stofuna í eitt heildstætt alrými.
Sjónvarpshol: Sérstakt sjónvarpshol sem býður upp á notalega aðstöðu fyrir fjölskylduna. Rennihurð skilur rýmið frá stofunni og gerir kleift að loka því af eftir þörfum. Vínylparket á gólfi.
Herbergjagangur: Vel skipulagður gangur sem tengir svefnherbergin og baðherbergið. Vínylparket á gólfi og næturlýsing á ganginum.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með sér fataherbergi inn af, þar sem eru stórir, opnir fataskápar. Vínylparket á gólfi.
Svefnherbergi II og III: Tvö rúmgóð svefnherbergi, hvort um sig tæpir 12 m². Bæði herbergin eru með fataskápum, vínylparketi á gólfi, dimmerum á lýsingu og nettenglum.
Baðherbergi: Rúmgott og vel útbúið baðherbergi með baðkari, sturtu og upphengdu salerni. Góð innrétting við vask með háum skápum og blöndunartækjum frá Grohe. Flísar á gólfi. Sérstakur kostur er útgengi beint á pallinn, þar sem stutt er í saunahúsið og heita pottinn.
Þvottahús: Stórt og vel skipulagt þvottahús með góðri innréttingu, rúmgóðu skápaplássi og sérstakri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur er í innréttingu og vínylparket á gólfi. Þaðan er bæði innangengt í bílskúr og útgengt í bakgarð.
Bílskúr: Rúmgóður 41,8 m² bílskúr með flísum á gólfi, innréttingu og góðu millilofti sem nýtist til geymslu. Fyrir ofan bílskúrinn er einnig stórt geymsluloft. Lagt er fyrir vaski og heitu og köldu vatni við bílskúrshurð. Breið álflekahurð með mótor. Rafbílahleðslutengill er inni í húsinu.
Geymslurými: Rúmgóð, upphituð geymsla með lýsingu fyrir ofan herbergjagang, aðgengileg um lúgu með stiga.

Lóð og útisvæði
Lóð og pallur: Eignin stendur á stórri 973 m² eignarlóð með rúmgóðum, þökulögðum flötum. Á suðurhlið hússins er glæsilegur, um 130 m² lerkitimburpallur sem býður upp á fjölbreytta möguleika til útiveru. Á pallinum er heitur pottur með snjallstýringu og rafmagnslagnir. Stór rennihurð úr stofu tengir pallinn við alrými hússins. Reistur hefur verið veggur milli húsa til vesturs og gert er ráð fyrir snjóbræðslu í innkeyrslu.
Saunahús: Saunahús: Á lóðinni er 9 m² saunahús með sérstöku afslöppunarrými sem skapar skemmtilega viðbót við útisvæði eignarinnar. Saunahúsið er í smíðum og selst í núverandi ástandi, en möguleiki er á að semja sérstaklega við seljanda um fullnaðarfrágang gegn viðbótargreiðslu. Húsið er einangrað með 100 mm steinull og samkvæmt upplýsingum seljanda er gert ráð fyrir saunahurð og ofni frá Harvia, flísalögðu gólfi með niðurfalli, bekkjum úr thermowood, loftunarkerfi og LED-lýsingu. Stór ál-/trégluggi er í saunarýminu og þakið er einangrað og klætt bárujárni.
Garðhús: Á lóðinni er einnig 15 m² upphitað og einangrað garðhús sem býður upp á gott viðbótargeymslupláss. Húsið er byggt á staðnum á steyptri plötu, klætt með standandi klæðningu og bárujárni á þaki. Rafmagn er í húsinu ásamt tvöfaldri hurð, rafmagnstenglum innan- og utanhúss og lýsingu með hreyfiskynjara.

Bygging og annar búnaður
Húsið er byggt árið 2018 og er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Sökklar eru einangraðir og gluggar eru úr áli og tré. Gólfhiti er í öllu húsinu og Cat5e-netlagnir eru í öllum herbergjum. Einnig hefur verið lagt fyrir öryggismyndavélum.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/04/2024110.600.000 kr.117.000.000 kr.217.4 m2538.178 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2018
41.8 m2
Fasteignanúmer
2340758
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.300.000 kr.

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunhella 3
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Hraunhella 3
Hraunhella 3
800 Selfoss
217,4 m2
Einbýlishús
624
575 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Hjallabraut 14
Hjallabraut 14
815 Þorlákshöfn
204,8 m2
Einbýlishús
413
429 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Básahraun 22
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Básahraun 22
Básahraun 22
815 Þorlákshöfn
231,5 m2
Einbýlishús
614
518 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Elsugata 10
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Elsugata 10
Elsugata 10
815 Þorlákshöfn
231,9 m2
Raðhús
312
253 þ.kr./m2
58.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin