ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:Um er að ræða vel skipulagðan 89.3 fm sumarbústað á frábærum útsýnisstað við Þrastarhóla í landi Búrfells, eignin stendur á eignarlóð.
Miklar verandir eru í kringum húsið og er lóðin vel gróin, gott aðgengi að húsi og næg bílastæði.
Aka þarf um öryggishlið til þess að komast inn á sumarbústaðasvæðið og er hitaveita á svæðinu.
Mikil lofthæð er í húsinu og er innbyggð lýsing í loftum.
Húseign getur fengist afhent nokkuð fljótt og þá er möguleiki á að kaupa með stóran hluta af búslóð sem er til staðar í húsi í dag.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:Aðalhús er 74.1 fm merkt 01-01-01 og gesthús er 15.2 fm merkt 02-01-01, samtals 89.3 fm.
Eignarlóðin er 7762 fm.
Greitt er í sumarhúsafélag árlega og er það gjald kr. 15.000.- á ári.
Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:Aðalhús er forstofa, alrými sem að er stofa, borðstofa og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla/þvottahús.
Í gesthús er svefnherbergi með baðherbergi innaf.
Nánari lýsing á eign:Komið er inn í forstofu og er innbyggður fataskápur í forstofu.
Hol/gangur þangað sem að gengið er í önnur rými hússins.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu alrými með gluggum á þrjá vegu, útgengi úr stofurými til suðurs úr stofu.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og einföldum ísskáp.
Tvö góð svefnherbergi og eru fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, ágætis innrétting með skúffum undir vask, upphengt salerni, sturtuklefi, útgengt úr baðherbergi út á verönd.
Við aðalinngang í hús er geymla og þvottaherbergi.
Gesthús er á verönd hússins og þar er gott svefnherbergi og baðherbergi með selerni og sturtuklefa.
Heitur pottur (hitaveituskel) er á verönd og þar við er útisturta.
Gólfefni: Flísar á gólfum eignar.
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu, heitum potti og útisturtu.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Þetta er fallegt og vel um gengið sumarhús sem að stendur á frábærum útsýnisstað.
Góð aðkoma og næg bílastæði og þá er búið ða leggja ljósleiðara í húsið.
Sumarhúsasvæðið er í ca. 50 mín aksturfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Stutt er í mikla afþreyingu í nágrenninu veiði, sundlaug, golfvelli (Öndverðarnes, Kiðjaberg, Dalbúi, Úthlíðarvöllur) og fallegar gönguleiðir.
Stutt er á Selfoss í alla þjónustu.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.