*LAUS STRAX*
Lögheimili eignamiðlun kynnir bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Yfirbyggðar svalir. Snyrtilegur stigagangur og sameign. Eignin er samtals 63,6 fm. skv. fasteignayfirliti. Laus nú þegar. Gott útivistarsvæði með leiktækjum á lóð og stutt í alla þjónustu. Í næsta nágrenni er leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, verslunar- og þjónustumiðstöð, sundlaug, bókasafn, heilsugæsla o.fl.
Eignin skiptist í hol, stofu, herbergi, eldhús, baðherbergi og yfirbyggðar svalir. Sérgeymsla er á jarðhæð.
Nánari upplýsingar veitir: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@logheimili.is
Nánari lýsing: Hol er með innangengt í aðrar vistarverur. Stofa er með útgengt á yfirbyggðar svalir. Í eldhúsi er hvít innrétting, flísar milli efri og neðri skápa, borðkrókur og opið inn í stofu. Í baðherbergi er skápur undir vaski, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél, þrjár glerhillur og flísar upp veggi. Herbergi er með fataskáp. Parket er á gólfum, nema á baðherbergi, holi og eldhúsi þar sem eru flísar. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla, eru á jarðhæð.
Annað: Samkvæmt eignaskiptasamning um Kríuhóla 2 er íbúð 59 fm. og geymsla 5,1 fm. Skipt var um ofna í sameign hússins árið 2022.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.