Fasteignaleitin
Skráð 15. okt. 2025
Deila eign
Deila

Móstekkur 8 - 201

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
123.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.800.000 kr.
Fermetraverð
644.068 kr./m2
Fasteignamat
65.250.000 kr.
Brunabótamat
73.400.000 kr.
Mynd af Hafsteinn Þorvaldsson
Hafsteinn Þorvaldsson
Löggiltur fasteignasali - viðskiptafræðingur
Byggt 2023
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2524328
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
2023
Raflagnir
2023
Frárennslislagnir
2023
Gluggar / Gler
2023
Þak
2023
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í sölu nánast nýja virkilega vandaða og flotta íbúð við Móstekk 8 (íbúð 201).  Íbúðin er fullbúin og tilbúin til afhendingar.  Húsið er fjórar íbúðir, tvær í hvoru húsi og tengibygging á milli þar sem eru geymslur og svalir.  Hver íbúð er með sérinngang.  Staðsetning er í suð-vesturhluta bæjarins í göngufæri frá Stekkjarskóla.  Íbúðin er á efri hæð 123,9 fm ásamt geymslu. Einnig er sameign á jarðhæð tæknirými/hjólageymsla. Húsið er hannað af TEARK arkitektum þar sem fágað útlit, gæði og notagildi skapa eina heild. Lóðin umhverfis húsið er hönnuð af landslagsarkitektinum Hermanni Ólafssyni en á lóð fylgir hverri íbúð sér bílastæði þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð. Húsin eru staðsteypt, einangrað og klætt að utan með vandaðri ál utanhússklæðningu og á þaki, sem er einhalla, er soðinn tjörupappi.  Mikil lofthæð og stórir gluggar.

Íbúð C - merkt 201 efrihæð, verð 79.800.000.- Tilbúin til afhendingar við kaupsamning. 
***** Bókið skoðun - sýni samdægurs *****

Nánari lýsing:
Rúmgóð forstofa með innbyggðum fataskáp, gangur með parketi á gólfi, þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, handklæðaofn, innrétting, speglaskápur og "walk inn" sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Sérsmíðuð elhúsinnrétting frá Voké-III. Ljúflokur á öllum skúffum og skápum ásamt innbyggðri ledlýsingu sem er undir efri skápum í eldhúsi. Heimilistæki frá AEG.  Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á svalir. Á svölum er skjólveggur og svalahandrið er polýhúðað stál.  

Svæðaskiptur gólfhiti með digital stýringum, harðparket frá og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré frá IDEAL. Allir innveggir eru annarsvegar steyptir burðarveggir og hinsvegar hlaðnir milliveggjasteini úr léttsteypu. Í loftum er dúkaloft með innfelldri Led lýsingu en dúkurinn skapar góða hljóðvist í íbúðinni . Lóð, fullfrágengin, gras, gróður, hellulagðar/styptar stéttar og malbikað bílaplan með 27 bílastæðum en íbúðinni fylgir eitt sér stæði þar sem lagt hefur verið fyrir hleðslustöð sem tengist beint inn á rafmagnsmæli íbúðar. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.

Virkilega flott íbúð, í vönduðu húsi þar sem skipulag, frágangur, efnisval og innréttingar eru til fyrirmyndar.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                            
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tryggvagata 12
Bílastæði
Skoða eignina Tryggvagata 12
Tryggvagata 12
800 Selfoss
89.6 m2
Fjölbýlishús
312
858 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 12
Bílastæði
Skoða eignina Tryggvagata 12
Tryggvagata 12
800 Selfoss
87.8 m2
Fjölbýlishús
3
864 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Móstekkur 2
Skoða eignina Móstekkur 2
Móstekkur 2
800 Selfoss
132.5 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Móstekkur 8c
Skoða eignina Móstekkur 8c
Móstekkur 8c
800 Selfoss
123.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
644 þ.kr./m2
79.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin