Skráð 23. mars 2023
Deila eign
Deila

Hraungata 25

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
145.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
722.452 kr./m2
Fasteignamat
59.250.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Lyfta
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2520318
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðar í húsi
3
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
28,1 fm
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
BÓKIÐ EINKASKOÐUN Í SÍMA 696-0226 EÐA 699-2010  - SÝNUM ALLA DAGA
 
Þorsteinn Yngvason og Magnús Már Lúðvíksson, löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu, kynna í einkasölu:
Nýjar og glæsilegar 2-4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi að Hraungötu 25-27 í Urriðaholti. Stærðir frá 81 – 160 fm.  8 íbúðir með bílskúr í lokaðri bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
 
Íbúðin er tilbúin til afhendingar samhliða kaupsamningi. 

Frekari upplýsingar um íbúðirnar sem eru í sölu að Hraungötu 25-27 má finna á eftirfarandi kynningarsíðu:
https://hraungata25-27.is/
 
Íbúð 203: Glæsileg fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð með bílskúr í lokaðri bílageymslu. Skráð stærð 145,2 fm, þar af er íbúðin 108,7 fm, bílskúrinn 26,8 fm og geymslan 9,7 fm. Útgengt út á 28,1 fm svalir.
 
Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré. Helstu kostir við frágang:
  • Innréttingar frá FORMUS
  • Silestone steinborðplötur eru á eldhúsi og baðherbergjum
  • Innfelld lýsing í íbúðum
  • Eldhústæki frá Bræðrunum Ormsson, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti, combi bakaraofn, spanhelluborð og gufugleypir.
  • Gólf baðherbergja og þvottahúsa flísalögð með 60 x 60 flísum frá Birgisson
  • Gluggi í flestum baðherbergjum.
  • Innihurðir heita Ringo frá Birgisson
  • Hús klætt að utan með vandaðri álklæðningu. Glerhandið á svölum.
  • Gluggar eru af gerðinni Rationel – K gler. 
  • Myndavéladyrasími er í öllum íbúðum.
  • Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.
Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápur upp í loft.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft. 13,5 fm.
Herbergi: Fataskápur upp í loft. 10,4 fm.
Herbergi: Fataskápur upp í loft. 8,9 fm.
Baðherbergi/þvottahús: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn. Afstúkað rými með innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi í rýminu.
Eldhús: Falleg innrétting og eyja með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, combi bakaraofn. Útgengt út á svalir frá rýminu.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á 28,1 fm svalir frá rýminu.
Svalir: 28,1 fm
Bílskúr: Í lokaðri bílageymslu á 1. hæð. 26,8 fm
Geymsla: Í sameign á 1. hæð. 9,7 fm.
 
Húsið: Hraungata 25-27 er steinsteypt þriggja hæða fjölbýlishús með 15 íbúðum í tveimur stigagöngum. Íbúðirnar eru 2-4 herbergja og er lyfta í báðum stigagöngum. Á 1. hæð eru tvær íbúðir í Hraungötu 25 og ein íbúð í Hraungötu 27. Sérafnotareitir fylgja íbúðum á 1. hæð. Á hæðinni eru jafnframt anddyri, geymslur íbúða, hjóla- og vagnageymslur, inntaksrými og bílageymsla með átta bílskúrum. Á 2. og 3. hæð hússins eru 6 íbúðir á hvorri hæð. Húsið er teiknað af Kristni Ragnarssyni, arkitekt, og uppfyllir húsið og íbúðir þess skilyrði algildrar hönnunar.
 
Umhverfið: Húsið er staðsett í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities.
 
Frekari upplýsingar veita: 
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali.
699-2010 eða maggi@remax.is

Þorsteinn Yngvason,
Löggiltur fasteignasali
696-0226 eða thorsteinn@remax.is
--------------------------------------------------
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
26.8 m2
Fasteignanúmer
2520318
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Mynd af Magnús Már Lúðvíksson
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 40
3D Sýn
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
128.4 m2
Fjölbýlishús
413
871 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 40
3D Sýn
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
128.4 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 40
3D Sýn
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
127.9 m2
Fjölbýlishús
413
820 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 40
3D Sýn
Bílastæði
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
128.4 m2
Fjölbýlishús
413
817 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache