Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is kynna í einkasölu: Glæsilega og virðulega sérhæð á 1 hæð auk geymslur og 4ja herbergja sér aukaíbúð(ósamþykkt) í kjallara með sérinngang, einnig bílskúr sem er nýstandsett 2ja herbergja ósamþykkt íbúð í dag, á þessum eftirsótta stað í gamla Vesturbæ Rvk. Samtals stærð samkvæmt þjóðskrá 281 fm. Húsið sjálft er glæsilegt og virðulegt, með mikla sögu og hafa eigendur tekið mið af því í viðhaldsferli hússins. Eignarlóð. Um er að ræða 51% eignarhlut í þessu glæsilega og virðulega steinhúsi sem upphaflega telur þrjár samþykktar íbúðir/sérhæðir. Garður er fallegur og skjólsamur. Hornlóð. Eignin skiptist m.a. þannig: Aðalhæð: 121,2 fm 4-5 herbergja sérhæð. sérinngangur, forstofa, hol, bjart eldhús með máluðum snyrtilegum innréttingum, borðstofa við eldhús og björt stofan, útgengt á suð-vestur svalirnar, opið inn í rúmgott bókaherbergi (voru tvö barnaherbergi)
Svefnálma: Fallegt baðherbergi með glugga, rúmgot hjónaherbergi og annað rúmgott herbergi. Innangengt er í sameign í kjallara frá forstofu, þar sem eru sérgeymslur og þvottaherbergisaðstaða. Innangengt er í kjallara íbúð í gegnum sameign ef vill.
Aðalhæðin hefur verið látið halda sér nokkuð í upprunalegum stíl hússins. Parket á gólfum.
Íbúð í kjallara er óvenju rúmgóð og björt 4ja herbergja ca 100 fm, með sérinngang. Í dag eru 3 rúmgóð herbergi, stofa/eldhús í sama rími, snyrting og lítið baðherbergi með sturtuaðstöðu. Auðvelt að stækka stofu á kostnað eins herbergis, verður þá til skemmtileg 3-4ja herbergja íbúð/sérhæð. Hæðin/íbúðin hefur fengið að halda nokkuð í upphaflega stílinn. (var áður nokkur herbergi en púsluð sem íbúð í dag)
Íbúð í bílskúr 2ja herbergja 53,6 fm er ný standsett. Sérinngangur, stofa/eldhús í sama rími, rúmgott herbergi og baðherbergi með sturtuaðstöðu. Stæði fyrir frama bílskúr/íbúð tilheyrir aðahæðinni.
Fallegir glugggar í frönskum stíl setja svip á húsið. Samkvæmt upplýsingum seljenda þá er eignin nokkuð endurnýjuð á sl. árum: 2014: Nýtt rafmagn lagt í kjallara
2018: Nýjar ofnalagnir lagðar í kjallara og hæð
2014: Í kjallara var allt tekið í gegn, gólfefni, eldhúsinnrétting og klósett gert upp.
2017: Nýtt rafmagn lagt í íbúðina
2018: Þak málað
2019: Þak á bílskúr einangrað og klætt
2019: Garður tekinn í gegn, pallur byggður, innkeyrsla hellulögð ásamt því að múrviðgerðir voru gerðar á lóðargarði
2022: Nýjar þakrennur og þakpappi lagaður
2022: Múrviðgerðir á þakkanti ásamt því að hús var málað
2023: Gluggar málaðir að utan
2024: Íbúð gerð upp í bílskúr, hreinsað niður í fokhelt og allt endurnýjað og einangrað betur.
Samkomulag hefur verið gert við aðra eigendur hússins um að allt við hald á glerjum/gluggum verði á kostnað hvers eignarhluta um sig.
gert eftir þörfum, hraða og smekk aðila.
Góð eign fyrir stóra samhenta fjölskyldu eða þá sem vilja fjárfesta til framtíðar á eftirsóttum stað.
Þetta er glæsileg og virðuleg eign/íbúðir á þessum vinsæla stað í vesturbæ borgarinnar.
Nánari uppl.gefur Helgi Jón Harðarson sölsutjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Freyja M Sigurðardóttir lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.