DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 23. nóv. 2026

Títanhella 19

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
91.8 m2
Verð
34.990.000 kr.
Fermetraverð
381.155 kr./m2
Fasteignamat
20.250.000 kr.
Jarðhæð
Garður
Fasteignanúmer
0200118
Landnúmer
241205
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stálgrind / samlokueiningar
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
18
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
Hitaveita/ofnakerfi
Erling Proppé löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna: Glæsileg og vönduð geymslubil við Títanhellu 19 í Hafnarfirði.

Ný geymslubil þar sem áhersla er lögð á vandað/flott efnisval og frágang. Húsin eru byggð úr stálgrind með steinullareiningum, 120mm í veggjum og 160mm í þaki, ásamt tvöföldum ábræddum IKO-þakpappa á þakinu með 10 ára ábyrgð. Bilunum verður skilað með epoxy-gólfum, ofnahitun, uppsettri vandaðri lýsingu, ræstivaski, lögnum fyrir salerni ásamt skráðum fullfrágengnum milliloftum með stálstiga og handriði.

Svæðið verður afgirt með aðgangsstýrðum hliðum og öryggismyndavélakerfi.

Verkefnið samanstendur af 44 geymslubilum í tveimur matshlutum.


Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.is


Helstu atriði:
  • Afgirt svæði með aðgangsstýrðu hliði og öryggismyndavélakerfi.
  • Þriggja þátta alvöru epoxy-gólf og niðurfall innan við innkeyrsluhurð.
  • Skráð milliloft með stálstiga og handriði, nema í 30–36 m² bilum.
  • Steinullareiningar verða í ljósgráum lit að innan og stálgrind í dekkri tón. - Vandað útlit. 
  • 160 mm steinullareiningar í þaki með tvöföldum ábræddum IKO-þakpappa veitir frábæra hljóðvist og einangrun. 
  • 120 mm steinullareiningar í útveggjum og 100 mm í milliveggjum.
  • Veggeiningar í tæringarflokki C4 að utan og C2 að innan. - Betri ending, meiri gæði.
  • Innkeyrsluhurð 3 m á breidd og 3,35 m á hæð, með gluggafleka efst sem gefur góða birtu inn í bilið.
  • Sér gönguhurð og stór gluggi með opnanlegu fagi fyrir ofan.
  • Ofnahitun og uppsettur skolvaskur með heitu og köldu vatni.
  • Þriggja fasa rafmagn og uppsettur þriggja fasa rafmagnstengill.
  • Sér rafmagnsmælir fyrir hvert bil.
  • Ljósleiðarabox í öllum bilum.
  • Vönduð lýsing uppsett innan- og utandyra.
  • Malbikað bílaplan og bílastæði í sameign.
VANDAÐUR OG TRAUSTUR BYGGINGARAÐILI – www.reising.is

Nánari lýsing:

Undirstöður og gólf
Staðsteyptir sökklar á þjappaðri fyllingu. Botnplata er staðsteypt úr C35/45 vélslípisteypu og verður vél- eða þurrslípuð eftir veðuraðstæðum við niðurlögn. Gólfum verður skilað með þriggja þátta epoxy-yfirborði og niðurfalli innan við innkeyrsluhurð.

Burðarvirki, veggir og þak
Húsin eru úr stálgrind á staðsteyptum sökklum. Útveggir eru úr 120 mm samlokueiningum og milliveggir úr 100 mm einingum með harðpressaðri steinull, 100 kg/m³. Einingarnar eru klæddar 0,6 mm alumzinki, dökkar að utan og ljósgráar að innan, í tæringarflokki C4 að utan og C2 að innan.
Þak er úr 160 mm steinullareiningum með tvöföldu lagi af ábræddum IKO-þakpappa frá Þaktak ehf., sem sér jafnframt um lagningu. Þak er ljósgrátt að innan.

Milliloft
Milliloft fylgja öllum bilum nema 30–36 m² bilum og eru innifalin í skráðri fermetratölu. Meginburður er úr brunavarðri stálgrind með 45 × 175 mm C24 burðarvið á milli. Milliloft eru einangruð með uppvíraðri þéttull og klædd að neðan með einföldu lagi af rakavörðu gifsi. Vandaður stálstigi og stálhandrið á stiga og útbrún millilofts fylgja uppsett. 2.9m undir millilofti. 

Pípulagnir og upphitun
Pípulagnir eru utanáliggjandi, ryðfríar og sýnilegar. Skolvaskur með heitu og köldu vatni verður uppsettur í enda bils, einnig verður niðurfall staðsett við bílskúrshurð ef aðilar vilja hafa vaskin nær hurð, ofnakerfi sér um upphitun. Skólpstammi fyrir salerni verður í gólfi í horni ásamt lagnaendum með kúlulokum. Salerni fylgir ekki uppsett.
Hitakostnaður er sameiginlegur og skiptist hlutfallslega eftir eignarhluta samkvæmt eignaskiptasamningi.

Raflagnir og lýsing
Raflagnir eru utanáliggjandi og sýnilegar. Greinatafla með þriggja fasa rafmagni verður uppsett ásamt einum þriggja fasa tengli við töflu. Sér rafmagnsmælir er fyrir hvert bil, staðsettur í inntaksrými hússins.
Tunnuljós verða í lofti í sal, kastarar á millilofti og grannir kúplar undir millilofti þar sem við á. Ljósarofi og rafmagnstengill verða við hurð. Útilýsing verður uppsett og tengd við sólúr. Ljósleiðarabox verður í hverju bili.

Innkeyrsluhurðir, gönguhurðir og gluggar
Innkeyrsluhurðir verða 3 m á breidd og 3,35 m á hæð með gluggafleka efst. Gönguhurð verður við hlið innkeyrsluhurðar og fyrir ofan hana gluggi með opnanlegu fagi. Endabil verða einnig með gluggum með opnanlegu fagi á göflum.

Lóð, aðgengi og öryggi
Lóðin verður afgirt með aðgangsstýrðum hliðum. Fjarstýring fylgir hverju bili og gengur að báðum hliðum og iðnaðarhurð. Öryggismyndavélakerfi verður uppsett og í umsjá húsfélags, sem greiðir mánaðarlegan rekstrarkostnað með húsgjöldum.
Bílastæði eru í sameign allra. Bílaplan hvers matshluta verður malbikað samhliða framkvæmdum þess matshluta.

Framkvæmdir eftir afhendingu
Tveir matshlutar verða á lóðinni og verða þeir byggðir samtímis eða hvor á eftir öðrum. Framkvæmdir við annan matshluta geta því staðið yfir eftir afhendingu. Byggingaraðili mun leitast við að haga framkvæmdasvæði þannig að eigendur verði fyrir sem minnstum truflunum.
Kaupandi er upplýstur um að teikningar og útlit annarra húsa á lóðinni geta breyst og skuldbindur sig samkvæmt skilalýsingu til að undirrita nauðsynleg gögn vegna þess.
Myndefni, teikningar og efnisatriði eru til viðmiðunar og kunna að taka breytingum. Vísað er til skilalýsingar seljanda um nánari útfærslur og afhendingarástand.

Virðisaukaskattskvöð
Engin virðisaukaskattskvöð verður þinglýst á eignirnar, það er þó hægt að bjóða upp á það fyrir þá sem vilja og geta.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé löggiltur fasteignasali // 690-1300 // erling@remax.is


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Títanhella(endabil) 19
Títanhella(endabil) 19
221 Hafnarfjörður
84,9 m2
Atvinnuhúsn.
412 þ.kr./m2
34.990.000 kr.
Skoða eignina Títanhella 19
Skoða eignina Títanhella 19
Títanhella 19
221 Hafnarfjörður
91,8 m2
Atvinnuhúsn.
381 þ.kr./m2
34.990.000 kr.
Skoða eignina Títanhella 19
Skoða eignina Títanhella 19
Títanhella 19
221 Hafnarfjörður
91,8 m2
Atvinnuhúsn.
381 þ.kr./m2
34.990.000 kr.
Skoða eignina Títanhella 19
Skoða eignina Títanhella 19
Títanhella 19
221 Hafnarfjörður
91,8 m2
Atvinnuhúsn.
381 þ.kr./m2
34.990.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin