DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 7. júlí 2026

Laugarnesvegur 89

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
110.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
952.770 kr./m2
Brunabótamat
71.340.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
22561281
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Trausti Fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu einstaklega bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með  suðurverönd og sérmerktu endastæði í bílageymslu í eftirsóttu húsi við Laugarnes 89 Reykjavík.  Birt stærð eignar er 110,1 fm samkvæmt HMS, þar af er 8,9 fm geymsla í kjallara.  Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign sem vert er að skoða. Sér inngangur er í íbúðina.

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi.  Frá forstofu er komið inn í alrými sem tengir önnur rými íbúðarinnar.  Tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús.
Stofan er stór og björt með útgengi út á sólríka suður verönd og þar út á vel hirta stóra lóð með leiktækjum.  Eldhús rúmgott með fallegum innréttingum, góðu skápaplássi og borðkrók.  Eldhúsið er að hluta til opið að stofu.
Hjónaherbergi er rúmgott með mjög góðu skápaplássi. Aukaherbergi er án skápa.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, falleg eikarinnrétting, upphengt salerni og baðkar.  Gott þvottahús er inn af eldhúsi með flísalögðu gólfi.
Geymsla er í sameign ásamt sér endastæði í bílageymslu með tengi fyrir hleðslustöð. Næg bílastæði eru svo við framhlið hússins. Einnig er í kjallara sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt rúmgóðri sameiginlegri geymslu sem tekur vel við. Sameignin er mjög vel um gengin og allt viðhald virðist vera til fyrirmyndar.  Fjarstýringar á öllum hurðum sameignar.  Húsið er álklætt að utan sem dregur úr viðhaldsþörf.

Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign í hjarta Laugardalsins sem vert er að skoða. Stutt í allar áttir sbr.miðbæinn, sjávarsíðuna, Laugardalslaugina , útivist og hvers kyns verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Trausti fasteignasala
www.trausti.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bríetartún 11
Skoða eignina Bríetartún 11
Bríetartún 11
105 Reykjavík
130.7 m2
Fjölbýlishús
423
971 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjastræti 7 (313)
IMG_4536.JPG
Reykjastræti 7 (313)
101 Reykjavík
130 m2
Fjölbýlishús
211
1115 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarvegur 6
IMG_5638.JPG
Skoða eignina Skógarvegur 6
Skógarvegur 6
103 Reykjavík
109.2 m2
Fjölbýlishús
312
929 þ.kr./m2
101.400.000 kr.
Skoða eignina Dalsel 8
Skoða eignina Dalsel 8
Dalsel 8
109 Reykjavík
90.1 m2
Fjölbýlishús
312
709 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin