DV logo
Fasteignaleitin
Opið hús:30. mars kl 17:00-17:30
Skráð 26. mars 2026

Safamýri 57

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
79.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
928.392 kr./m2
Fasteignamat
67.050.000 kr.
Brunabótamat
41.550.000 kr.
Mynd af Jón Gunnar Gíslason
Jón Gunnar Gíslason
Fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2014434
Landnúmer
103709
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sólpallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir: Safamýri 57, 108 Reykjavík, Íbúð merkt 01-001. Björt og falleg, vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og sólpalli í góðu þríbýlishúsi á þessum eftirsótta stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gíslason Fasteignasali, í síma 848-7099, tölvupóstur jongunnar@fstorg.is.


Nánari lýsing:

Íbúðin er björt og falleg með sérinngangi og suðvestur sólpalli.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Rúmgott og bjart alrými með stórum gluggum þar sem stofa, borðstofa og eldhús tengjast.
Eldhús með góðum innréttingum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél ásamt bakaraofn og eldunareyju.
Útgengt er úr alrými út á suðvestur sólpall með skjólveggjum.
Baðherbergi er mjög snyrtilegt flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtu, upphengt salerni, innrétting undir og við handlaug ásamt glugga.
Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni annað með stórum fataskáp.
Geymsla í sameign fylgir eigninni 3.55fm skv. eignaskiptalýsingu sem er ekki inní fermetratölu.
Þvottahús er sameiginlegt á hæðinni hver með sína vél.
Góður sameiginlegur garður.

Skipt var um þakjárn, þakpappa, flasningar, túður, rennur og niðurföll árið 2023 að sögn seljanda.

Falleg og björt íbúð með sérinngangi og suðvestur sólpalli á eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla þjónustu.

Eignin Safamýri 57 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-4434, birt stærð 79.6 fm.

Nánari upplýsingar veitir Jón Gunnar Gíslason Fasteignasali, í síma 848-7099, tölvupóstur jongunnar@fstorg.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
07/12/202140.600.000 kr.54.000.000 kr.79.6 m2678.391 kr.
09/01/201938.300.000 kr.43.100.000 kr.79.6 m2541.457 kr.
16/09/201419.000.000 kr.29.700.000 kr.79.6 m2373.115 kr.
30/04/200716.390.000 kr.19.400.000 kr.79.6 m2243.718 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurmói 4 - Íbúð 301
Víkurmói 4 - Íbúð 301
800 Selfoss
98.9 m2
Fjölbýlishús
413
656 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurmói 4 - Íbúð 402
Víkurmói 4 - Íbúð 402
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús
312
690 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 202
Opið hús:29. mars kl 14:00-14:30
Asparskógar 18 - íbúð 202
300 Akranes
53.3 m2
Fjölbýlishús
211
910 þ.kr./m2
48.500.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18 - íbúð 101
Bílastæði
Opið hús:29. mars kl 14:00-14:30
Asparskógar 18 - íbúð 101
300 Akranes
71.6 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin