Borg fasteignasala kynnir til sölu 3ja herbergja íbúð við Snorrabraut í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin er laus til afhendingar strax.
Nánari lýsing: Komið er inná dúkalagða forstofu.
Tvö svefnherbergi með dúk á gólfi.
Stofa með dúk á gólfi.
Eldhúsi með viðarinnréttingu, ný borðplata og eldhústæki.
Baðherbergi með flísum á gólfi.
Yfirlit yfir framkvæmdir:
Rafmagn og töflur í sameign yfirfarið.
Stigagangur málaður og teppalagður 2024
Húsið steypuviðgert að hluta 2022.
Gluggar og hljóðvarnargler endurnýjað Snorrabrautar megin.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði