DV logo
Fasteignaleitin
Skráð 3. okt. 2026

Bergþórugata 59

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
105.8 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
944.234 kr./m2
Fasteignamat
78.000.000 kr.
Brunabótamat
56.700.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1935
3. hæð · efsta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008451
Landnúmer
102500
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar að hluta * sjá lýsingu
Raflagnir
endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Þak
Endurnýjað að hluta - * sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
35,15
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sameiginlegur
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á efstu hæð við Bergþórugötu 59 í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign sem er innréttuð á einstaklega smekklegan hátt og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér salerni, eldhús og tvær rúmgóðar samliggjandi stofur, þar sem mögulegt er að útbúa þriðja svefnherbergi. Eigninni fylgir stórt herbergi í kjallara með glugga, skráð sem geymsla ásamt tveimur minni geymslum. Húsið hefur fengið töluvert viðhald á undanförnum árum. Frábær staðsetning með alla þá þjónustu og verslun sem miðbærinn hefur uppá að bjóða ásamt leik- og grunnskóla í nokkra metra göngufjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is - ** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR **

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 105,8 m², þar af er íbúðin 84,2 m², geymsluherbergi í kjallara 18,3 m², geymsla í kjallara 2,0 m² og geymsla á stigapalli 1,3 m².

Nánari lýsing eignar
Forstofa/gangur: Komið er inn í bjartan gang sem tengir saman rými íbúðarinnar. Parket á gólfi.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús með flísum á gólfi. Stílhrein innrétting með stálhurðum og sérsmíðaðri stálborðplötu. Öll eldhústæki eru frá Samsung og blöndunartæki, Talis M54 frá Ísleifi. 
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar samliggjandi stofur með stórum gluggum og parket á gólfi. Nýtist vel sem stofa og borðstofa, en auðvelt að nýta aðra stofuna sem þriðja svefnherbergi.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og björt með parket á gólfi. Góður fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með sturtu og vaskinnréttingu. Flísar á veggjum og flotað gólf.
Salerni: Sér salerni með vaski. Flísar á vegg að hluta og flotað gólf.
Gólfefni: Parket er á öllum helstu rýmum íbúðarinnar, eldhús er flísalagt og gólf á baðherbergi og salerni eru flotuð.
Geymslur: Eigninni fylgir rúmgott 18,3 m² geymsla/herbergi í kjallara með glugga, sem býður upp á góða nýtingarmöguleika, m.a. til útleigu. Aðgangur er að sameiginlegu salerni í kjallara. Eigninni fylgja einnig tvær minni geymslur, 2,0 m² geymsla í kjallara og 1,3 m² geymsla á stigapalli hjá íbúð. Samkvæmt fasteignaskrá er 18,3 m² rýmið skráð sem geymsla.

Endurbætur og viðhald undanfarinna ára
Framkvæmdir á íbúð – að sögn seljenda:
2024–2025: Eldhús endurbætt, innrétting endurnýjuð og skipt um öll eldhústæki.

Framkvæmdir fyrri eiganda – að sögn seljanda og samkvæmt fyrri söluskráningu:
2020: Salerni endurnýjað, m.a. nýtt salerni og vaskur og rýmið flísalagt. Rafmagn í íbúðinni yfirfarið.
2019: Eldhús endurnýjað að hluta; nýir neðri skápar og tæki, flísalagt og rafmagn yfirfarið.
2016: Baðherbergi endurnýjað, m.a. sturta, vaskur og innréttingar. Skipt var um allar neysluvatnslagnir í íbúðinni.
2016–2020: Allir ofnar í íbúðinni endurnýjaðir.

Viðhald og framkvæmdir á húsi og sameign – að sögn húsfélags og samkvæmt fyrri söluskráningu:
2020: Húsið málað og farið í múrviðgerðir.
2019: Unnið við samskeyti þaks milli Bergþórugötu 57 og 59 og gert við múr á vesturhlið.
2018: Epoxy lagt á kjallaragólf sameignar.
2016: Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum var farið í framkvæmdir á þaki.
2004 c.a.: Kjallaragólf brotið upp og skipt um skólplagnir út í götu. Rafmagn og hitakerfi hússins jafnframt yfirfarið.
2000 c.a: Skipt um glugga í stofum.

Á síðustu árum hefur einnig verið settur upp nýr dyrasími og nýr lás á útihurð, auk þess sem farið hefur verið yfir stillingar á hitakerfi hússins og skipt um þrýstijafnara.

** HVERS VIRÐI ER ÞÍN EIGN? SMELLTU HÉR **

Staðsetning
Eignin er staðsett á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fjölbreytt mannlíf miðborgarinnar. Verslanir, veitingastaðir, kaffihús, sundlaug, skólar og leikskólar eru í næsta nágrenni ásamt góðum göngu- og hjólaleiðum.

Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á efstu hæð á eftirsóttum stað í miðborg Reykjavíkur. Rúmgóðar samliggjandi stofur með möguleika á þriðja svefnherbergi og stórt herbergi í kjallara með aðgang að salerni. Eign sem er vert að skoða!

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/11/202148.550.000 kr.61.000.000 kr.105.8 m2576.559 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Framnesvegur 61
Skoða eignina Framnesvegur 61
Framnesvegur 61
101 Reykjavík
116.1 m2
Fjölbýlishús
513
844 þ.kr./m2
98.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb606 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:04. okt. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb606 Heklureitur
105 Reykjavík
121.7 m2
Fjölbýlishús
423
1108 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb510 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:04. okt. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb510 Heklureitur
105 Reykjavík
125.2 m2
Fjölbýlishús
423
1038 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb403 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:04. okt. kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb403 Heklureitur
105 Reykjavík
94.1 m2
Fjölbýlishús
312
1115 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin