BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HAMRAGERÐI 5 ÍBÚÐ 603, 700 Egilsstaðir. Tveggja herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi. Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði.
Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er steypt, byggt árið 2007. Eignin skiptist í íbúð 62.4 m² og geymslu 8.6 m², samtals 71.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, eitt herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í sameign: Sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing: Anddyri, tvöfaldur fataskápur, þaðan er innangengt í alrými.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofu út á svalir.
Eldhús, Ikea innrétting, helluborð og vifta, ofn, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi, vaskinnrétting, spegill, upphengt salerni, baðkar með sturtuhengi, veggir við baðkar eru flíslagðir.
Þvottahús, vinnuborð með stálvask, pláss fyrir tvær vélar - önnur þá á vinnuborði.
Gólfefni: Flæðandi parket á forstofu, alrými og herbergjum. Flísar eru á baðherbergi og þvottahúsi.
Í sameign í kjallara er sér geymsla, á jarðhæð 1. hæð er hjóla- og vagnageymsla.
HAMRAGERÐI 5 er sjö hæðir auk kjallara. Húsið er steypt. Þak er slétt steypt. Í húsinu eru 27 íbúðir, þrjár á fyrstu hæð og fjórar íbúðir á hverri hæð þar fyrir ofan.
40 bílastæði eru á lóð við húsið, lóð er sameiginleg, íbúðir á fyrstu hæð hafa sérnotaflöt. Lóð er gróin, bílaplan er malbikað.
Lóð er sameiginleg leigulóð 8324,0 m² í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 9. júlí 2004
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:Fasteignanúmer 229-6185. Hamragerði 5.Stærð: Íbúð 62.4 m². Geymsla 8.6 m². Samtals 71.0 m².
Brunabótamat: 42.300.000 kr.
Fasteignamat: 42.650.000 kr.
Byggingarár: 2007.
Byggingarefni: Steypa.
Eignarhald:
02.0603 - Séreign. Rými
02.0026 Geymsla 8.6 Brúttó m². 02.0603 Íbúð 62,4 Brúttó m². 02.0603 Svalir 8.5 Brúttó m².
02.X - Sameign allra. Rými.
02.0106 Hjól/vagnar 2.6 Brúttó m². 02.X Tæknirými 3.2 Brúttó m². 02.X Umferðarrými 15.8 Brúttó m².