Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Garður kynna til sölu glæsilega bjarta efri sérhæð í fjórbýli í Vallarhverfinu í Hafnarfirði. Íbúðin er 152 fermetrar með sérinngang í fjórbýli.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitiðSkipting eignar: Forstofa, fjögur svefnherbergi, hol, stofa, eldhús með borðkrók, þvottahús, geymsla og yfirbyggðar 26,8 fermetrar svalir sem snúa í suðaustur auk þess er í sameign hjólageymsla. Nánari lýsing: Forstofa: Flísalögð forstofa.
Hol: Rúmgott hol með parket.
Eldhús: Fallegt og bjart eldhús með eyju, nýlegt helluborð, bakaraofn, vaskur og blöndunartæki, eyjuháfur, innbyggður örbylgjuofn og uppþvottavél, parket flæðir inn í stofu.
Stofa: Björt og falleg stofa, í gluggum eru sérhannaðar álrimlagardýnur frá Flexa, milli stofu og eldhús er gengið út á stórar yfirbyggðar 26,8 fermetrar svalir.
Hjónaherbergi: með fataskáp og parket.
Þrjú svefnherbergi: Rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi sturtuklefi með nýlegum tækjum, baðkar og góðri baðinnréttingu með handlaug, upphengdur skápur og vegghengt salerni.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með innréttingu og innaf þvottahúsinu er geymsla.
Gólfefni eru parket og flísar.
Samkvæmt seljanda: Þá var húsið sealað að utan, gluggar og hurðir málaðar fyrir ca.tveim árum.
Falleg eign sem hægt er að mæla með.
Stutt er að ganga í grunn- og leikskóla. Verslanir, sundlaugar og íþróttasvæði Hauka eru í göngufæri ásamt annarri þjónustu í næsta nágrenni. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu og í kringum Ástjörn. Hvaleyrarvatn er einnig í göngufæri.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð s.895 9989 Löggiltur fasteignasali
Hulda Ósk s.771 2528 Löggiltur fasteignasali