Fasteignaleitin
Skráð 5. sept. 2024
Deila eign
Deila

Vaðlatún 18

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
118.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.900.000 kr.
Fermetraverð
623.629 kr./m2
Fasteignamat
71.550.000 kr.
Brunabótamat
50.010.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 2004
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2268137
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Á ekki við
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Vaðlatún 18

**Opið hús þriðjudaginn 10. september milli kl. 16 og 16:30**

Mjög vel skipulögð 3-4 herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð á skemmtilegum stað í Naustahverfinu. Eignin er samtals 118,5 fm. en þar af er stakstæður bílskúr við norðurenda 28,1 fm. Verönd sem er mjög rúmgóð og garður snýr til vesturs. Skemmtilegt útsýni er að Súlum og Hlíðarfjalli.


Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi eitt skráð sem geymsla skv. teikningu og baðherbergi auk bílskúrs.

Forstofa er með málað gólf, ofn og opið fatahengi.
Þvottahús er innaf forstofu og þar er málað gólf og ljós innrétting með vaska og stæði fyrir þvottavél. 
Gangur er með parket á gólfi.
Eldhús er með parket á á gólfi og eldhúsinnrétting er með góðum tækjaskáp, flísar á milli efri og neðri skápa. Stæði fyrir uppþvottavél er í innréttingu. Opið er úr eldhúsi yfir í stofu þar sem gert er ráð fyrir borðstofuborði við enda þess.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á steypta og timbur verönd til vesturs og þaðan út í garð.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parketi á gólfi og í tveimur þeirra eru fataskápar. Eitt herbergjanna er skráð sem geymsla á teikningum og þaðan er farið upp um lúgu á geymsluloft. Það er vel útbúið með góðri lýsingu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á veggjum í kringum votrými. Þar er baðkar með sturtutækjum, salerni, handklæðaofn og nýleg innrétting í kringum vask með ágætu skápaplássi.

Bílskúrinn er stakstæður, með rafdrifinni innkeyrsluhurð, gönguhurð og vask. Fyrir framan skúrinn er malbikað plan. 

Annað:
-Framan við hús er steypt stétt með hita að hluta.
-Gólfhiti í allri íbúðinni
-Gluggar og hurð nýlega máluð
-Eigninni fylgja samkv. eignaskiptayfirlýsingu 2 bílastæði, annað fyrir framan eign og hitt fyrir framan bílskúr.
-Inntök fyrir heitt og kalt vatn auk rafmagns eru í tæknirými við austurenda á bílskúr.
-Stutt í leik- og grunnskóla

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/11/201529.050.000 kr.28.500.000 kr.118.5 m2240.506 kr.
16/02/201022.650.000 kr.21.000.000 kr.118.5 m2177.215 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2004
28.1 m2
Fasteignanúmer
2268137
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
07
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.210.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekkugata 38 101
Bílastæði
Brekkugata 38 101
600 Akureyri
104.6 m2
Fjölbýlishús
211
684 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Jaðarstún 6 íbúð 201
Jaðarstún 6 íbúð 201
600 Akureyri
104.1 m2
Fjölbýlishús
413
700 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðartún 2 íbúð 205
Heiðartún 2 íbúð 205
600 Akureyri
111.3 m2
Fjölbýlishús
413
651 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Víðihlíð 1 íbúð 103
Víðihlíð 1 íbúð 103
604 Akureyri
105.9 m2
Fjölbýlishús
413
688 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin